Veður

Skafið og saltað

Bjarki Sigurðsson skrifar
„Hvar er nú skafan mín?“ hugsuðu eflaust margir með sér í morgun þegar þeir sáu að þeir þyrftu aðeins að hafa fyrir því að komast af stað í vinnuna í morgun. Aðrir voru löngu búnir að finna hana til enda var næturfrost fyrr í mánuðinum.
„Hvar er nú skafan mín?“ hugsuðu eflaust margir með sér í morgun þegar þeir sáu að þeir þyrftu aðeins að hafa fyrir því að komast af stað í vinnuna í morgun. Aðrir voru löngu búnir að finna hana til enda var næturfrost fyrr í mánuðinum. Vísir/Bjarki

Í nótt verður úrkoma um mest allt norðanvert landið, rigning við ströndina, annars slydda eða snjókoma. Í nótt var næturfrost víða á höfuðborgarsvæðinu og þurftu margir að rífa sköfuna upp í morgun. Þá hefur sést til saltbíla á götum borgarinnar og á bílastæðum.

Skil liggja yfir og við Austfirði sem rignir úr og líklega slydda til fjalla. Síðar í dag koma skilin lengra inn á land og fylgir þeim heldur svalara veður svo útlit er fyrir að snjói yfir um það bil tvö hundruð metrum yfir sjávarmáli. 

„Á morgun kemur dálítill úrkomubakki inn syðst á landinu og má búast við skúrum eða slydduéljum. Heldur hlýnar fyrir norðan svo snjólínan mun hækka og líklega snjóar eingöngu til fjalla og annað kvöld,styttir upp að mestu á þeim slóðum. Hiti almennt 1 til 6 stig að deginum. Á föstudag er svo áfram gert ráð fyrir fremur hægum vindi og líkur á stöku skúrir eða él í flestum landshlutum. Hiti svipaður áfram,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. 

Austlæg eða breytileg átt, víða þrír til metrar á sekúndu í dag, en átta til fimmtán metrar á Vestfjörðum seinnipartinn. Rigning eða slydda með köflum á láglendi og snjókoma inn til landsins, en þurrt að kalla á Suður- og Vesturlandi. 

Breytileg átt, þrír til átta metrar á morgun. Dálítil rigning eða skúrir sunnantil, smáél á Vestfjörðum en annars bjart með köflum. Hiti eitt til átta stig að deginum, mildast á Austfjörðum.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:

Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og dálítil rigning eða slydda öðru hvoru, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 1 til 6 stig.

Á föstudag:

Hæg breytileg átt og skýjað með köflum, en slydda eða rigning suðaustanlands og dálítil él á Vestfjörðum. Hiti 0 til 5 stig.

Á laugardag (fyrsti vetrardagur):

Norðaustan gola eða kaldi. Skýjað með köflum og stöku él á víða og dreif. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag:

Norðvestlæg átt og dálítil slydda eða snjókoma með köflum norðan- og austanlands, en annars víða bjartviðri. Hiti nærri frostmarki.

Á mánudag:

Líkur á hæglætisveðri en líklega él á norðaustanverðu landinu. Fremur svalt í veðri.

Á þriðjudag:

Útlit fyrir breytilega átt. Snjókoma eða slydda nyrst en bjart og þurrt annars staðar. Heldur mildara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×