Styttri leið úr IKEA einungis tímabundin Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 27. janúar 2024 14:59 Leiðin sem um ræðir. Úr búsáhaldadeild í gjafavörudeild. Vísir Glöggir viðskiptavinir IKEA hafa tekið eftir að leiðin að afgreiðslukassa verslunarinnar og út er talsvert styttri en vanalega. Þó er ekki um að ræða langtímabreytingu heldur einungis tímabundna lausn til þess að standast reglur um eldvarnir meðan á framkvæmdum stendur.
Margir eru kunnugir leiðinni löngu gegn um húsgagnaverslunina, þar sem viðskiptavinur er teymdur í gegn um hinar ýmsu deildir. Örvum er varpað á öll gólf með skjávarpa og teyma viðskiptavini í rétta átt svo þeir villist ekki. Nú hefur orðið smávægileg breyting á leiðakerfinu í IKEA, en opnuð hefur verið leið frá búsáhaldadeildinni að gjafavörudeildinni. Sú leið styttir ferðina í gegn um verslunina lítillega þannig að viðskiptavinir komast nú örlítið fyrr að afgreiðslukössunum. Í samtali við Vísi segir Stefán Rúnar Dagsson framkvæmdastjóri IKEA að breytingin sé einungis tímabundin, og til þess gerð að eldvarnarreglum sé fylgt. Framkvæmdir séu nú í fullum gangi við verslunina en unnið hefur verið að því að reisa nýtt vöruhús. Vegna þeirra hafi þurft að loka neyðarútgangi og því þurft að opna nýjan í staðinn. Þess vegna hafi breytingin verið gerð. Stefán segir að með nýja vöruhúsinu verði hægt að sameina tvo vörulagera sem þegar tilheyra fyrirtækinu og voru annars vegar staðsett í Suðurhrauni tíu og hins vegar í Kauptúni þrjú. Verslunin sjálf verði ekki stækkuð að þessu sinni. Framkvæmdir hófust í október 2022 og stefnt er að því að þær klárist seinni partinn á þessu ári.
IKEA Verslun Garðabær Mest lesið Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Viðskipti erlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fleiri fréttir Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira