Óttast að um sé að ræða fuglaflensu í fyrsta sinn Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. janúar 2024 16:06 Kóngamörgæsir á Suðurskautslandinu hafa aldrei smitast áður af fuglaflensunni, svo vitað sé. EPA-EFE/GEORGIOS KEFALAS Í hið minnsta ein mörgæs á Suðurskautslandi er talin hafa drepist úr fuglaflensu. Fáist það staðfest er um að ræða í fyrsta sinn sem mörgæs í heimsálfunni drepst úr veirunni. Um var að ræða kóngamörgæs.
Vísindamenn hafa áður varað við því að H5N1 vírusinn, sem kenndur er við fuglaflensu, geti valdið mörgæsum óafturkræfum skaða. Þess er getið í frétt Guardian um málið að nú sé fengitími mörgæsa, tími þar sem þær safnist saman í stórum hópum. Því hafi vísindamenn miklar áhyggjur af því að veiran geti dreifst hratt á meðal fuglanna. Kóngamörgæsir eru næst stærsta tegund mörgæsa í heiminum. Tilfellið af fuglaflensunni greindist á eyju sem kennd er við Suður Georgíu. Þar óttast vísindamenn jafnframt að ein smámörgæs hafi einnig drepist úr flensunni. Fram kemur í umfjöllun Guardian að staðfest tilvik fuglaflensu í smámörgæs hafi greinst á Falklandseyjum, í 1500 kílómetra fjarlægð úr vesturátt frá Suðurskautslandinu þar sem vísindamenn telja nú að tilfelli sé komið upp. Þá hefur flensan dregið töluverðan fjölda sæljóna til dauða. Talið er að í hið minnsta fimmhundruð þúsund sjávarfugla hafi drepist úr flensunni í Suður-Ameríku einni.
Suðurskautslandið Dýr Fuglar Dýraheilbrigði Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Fleiri fréttir Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Sjá meira