Breskur eignastýringarrisi byggir upp stöðu í Oculis
![Oculis er skráð í kauphöll Nasdaq í Bandaríkjunum og er að stórum hluta meðal annars í eigu íslenskra fjárfesta.](https://www.visir.is/i/E996505CC63B00BF60B0DB4675A0133DBAAA2C3118A14D2FB393133AD95E9EEA_713x0.jpg)
Breska eignarstýringarfélagið Standard Life Aberdeen er komið í hóp stærri hluthafa augnlyfjaþróunarfyrirtækisins Oculis, stofnað af tveimur íslenskum prófessorum og skráð á markað vestanhafs, eftir að hafa byggt upp stöðu í félaginu undir lok síðasta árs. Hlutabréfaverð Oculis hefur hækkað um nærri fimmtán prósent frá áramótum.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/D141AAA87A14B97ADA739053F1A8880230BE6DB4EB37BA38F999F0F3A3627777_308x200.jpg)
Oculis klárar hlutafjárútboð upp á nærri sex milljarða
Augnlyfjaþróunarfyrirtækið Oculis, sem var stofnað af tveimur íslenskum prófessorum á Íslandi fyrir tuttugu árum, kláraði í gærkvöldi hlutafjárútboð upp á samanlagt 40,25 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 5,7 milljarða króna. Hið nýja hlutafé var selt á rúmlega fjögurra prósenta lægra gengi, eða 11,5 dalir á hlut, en nam síðasta dagslokagengi félagsins fyrir útboðið.
![](https://www.visir.is/i/F3C6ABBAFF43E57D2DC3BED45EA9E624D125D93D55EC188A56F008159F572216_308x200.jpg)
Oculis fær tólf milljarða innspýtingu og setur stefnuna á Nasdaq
Lyfjaþróunarfyrirtækið Oculis, sem var stofnað af íslenskum prófessorum við Háskóla Íslands og Landspítalann, hefur tryggt sér að lágmarki um 80 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 12 milljarða króna, í nýtt hlutafé í tengslum við áformaða skráningu á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum á næsta ári. Stærsti fjárfestingarsjóður Evrópu á sviði lífvísinda leggur félaginu til meginþorra fjármagnsins.