Lærisveinar Guðmundar styrktu stöðu sína við toppinn Smári Jökull Jónsson skrifar 7. febrúar 2024 19:53 Guðmundur Guðmundsson er að gera góða hluti með lið Frederecia. EPA-EFE/Tamas Kovacs Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar í danska handboltanum styrktu stöðu sína í öðru sæti deildarinnar með sigri í kvöld. Halldór Jóhann Sigfússon og lið hans Nordsjælland mátti hins vegar sætta sig við stórt tap.
Fyrir leik Frederecia og Ringsted í kvöld var Frederecia í öðru sæti dönsku deildarinnar með 30 stig, fimm stigum á eftir toppliði Álaborgar og fjórum stigum á undan Bjerringbro-Silkeborg sem var í þriðja sæti. Frederecia var með frumkvæðið í upphafi og var yfirleitt einu til tveimur mörkum á undan heimamönnum. Staðan í hálfleik var þó 13-13 en gestirnir byrjuðu seinni hálfleikinn vel og komust mest fjórum mörkum yfir. Heimamenn komu þó til baka á nýjan leik og þegar innan við mínúta var eftir munaði aðeins einu marki. Nær komust heimamenn þó ekki og Frederecia vann að lokum 24-23 sigur. Einar Þorsteinn Ólafsson var í liði Frederecia í dag en tókst ekki að skora. Halldór Jóhann Sigfússon og hans menn í Nordsjælland mættu Sönderjyske á útivelli. Liðin voru hlið við hlið í deildinni og gat Nordsjælland jafnað heimamenn að stigum með sigri. Það gerðist þó ekki. Strax í fyrri hálfleik náði heimaliðið góðri forystu og leiddi 18-12 í hálfleik. Þann mun náðu gestirnir ekki að brúa. Lokatölur 32-24 Sönderjyske í vil sem skilur þar með Nordsjælland fjórum stigum fyrir aftan sig. Halldór Jóhann hættir með lið Nordsjælland að tímabilinu loknu og tekur við HK í Olís-deildinni.
Danski handboltinn Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Fleiri fréttir Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Sjá meira