Handbolti

FH skoraði hátt upp í fimm­tíu mörk gegn Fram

Aron Guðmundsson skrifar
Ómar Darri Sigurgeirsson var með markahæstu mönnum leiksins gegn Fram í kvöld.
Ómar Darri Sigurgeirsson var með markahæstu mönnum leiksins gegn Fram í kvöld. vísir/Diego

Olís deildar lið Fram og KA eru úr leik í Powerade bikarnum í handbolta eftir leiki kvöldsins í sextán liða úrslitum keppninnar. Framarar fengu á sig 46 mörk gegn FH.

Stóri leikur kvöldsins var án efa viðureign FH og Fram í Kaplakrika. Hafi menn búist við spennu reyndist það ekki raunin. FH-ingar, í blússandi sóknarham, skoruðu heil 46 mörk. Þegar að þú skorar 46 mörk í einum og sama leiknum þá er það rannsóknarmál ef þú tapar þeim leik. 

Svo fór að FH vann ellefu marka sigur 46-35. Fram er því úr leik á meðan að FH heldur áfram í átta liða úrslitin. Símon Michael Guðjónsson skoraði 11 mörk í liði FH í kvöld og Ómar Darri Sigurgeirsson tíu mörk. Jón Þórarinn Þorsteinsson átti fínan leik í marki liðsins og varði 15 skot.

Gunnar Róbertsson hélt svo áfram að raða inn mörkum í liði Vals sem vann þægilegan útisigur á Selfyssingum. Lokatölur urðu 28-37 Valsmönnum í vil. Gunnar skoraði átta mörk. 

Í Fossvoginum gerði lið Víkings Reykjavíkur sér svo lítið fyrir og sló KA úr leik með sjö marka sigri, 35-28. Sigurður Páll Matthíasson skoraði átta mörk í liði Víkings í leiknum og þá var Jón Karl Einarsson með sex mörk. 

Fyrr í dag hafði svo lið ÍBV betur gegn ÍR í spennandi leik sem lauk að lokum með fjögurra marka sigri Eyjamanna, 26-30. Daníel Þór Ingason var markahæstur í liði ÍBV með átta mörk en Jökull Blöndal Björnsson fór mikinn í liði ÍR og skoraði níu mörk. 

Lið Hvíta-Riddarans stóðst síðan liði Gróttu ekki snúning. Piltarnir af Seltjarnarnesi voru með mikla yfirburði í leiknum og unnu að lokum 18 marka sigur, 22-40. 

16-liða úrslitunum lýkur á laugardaginn eftir rúma viku þegar að ÍBV 2 tekur á móti liði Þórs frá Akureyri. Fyrir leiki dagsins hafði lið Hauka tryggt sér sæti í átta liða úrslitunum með sigri gegn Stjörnunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×