Ætla að gera sigurgöngu Aegon hins fyrsta skil Samúel Karl Ólason skrifar 9. febrúar 2024 14:30 Matt Smith í hlutverki Daemon Targaryen og drekinn Caraxes, úr House of the Dragon. Þessir nýju þættir eiga að gerast á undan sögu HOTD. HBO Innan veggja HBO í Bandaríkjunum er unnið að þróun nýrra þátta úr söguheimi Game of Thrones. Þessi nýjasta sería á að fjalla um innrás Aegon Targaryen og systra/eiginkvenna hans í Westeros.
Þættirnir eiga því að gerast á undan House of the Dragon, nýjustu þáttunum úr þessum söguheimi, en verið er að taka upp aðra þáttaröð þeirra. Aegon gekk undir nafninu Aegon „The Conqueror“ en eins og flestir ættu að vita gerði hann og þær Rhaenys og Visenya innrás í Westeros, hundruðum ára fyrir sögu Game of Thrones þáttanna og lögðu þau undir sig stóran hluta Westeros. Einn heimildarmaður Hollywood Reporter sagði að unnið væri með það í huga að líta aftur til þeirra grunngilda í skrifum George R.R. Martin sem gerðu Game of Thrones þættina góða. Mattson Tomlin, sem kom að því að skrifa handrit The Batman og framhaldsmyndarinnar, auk annarra verkefna, á að skrifa handrit nýju þáttanna fyrir HBO. Síðasti þáttur Game of Thrones var sýndur árið 2019 en síðan þá hefur verið unnið að þróun ýmissa annarra þáttaraða úr þessum söguheimi. Ein slík átti að fjalla um svokallaða öld hetjanna og fjalla um fyrstu árás hinna dauðu á Westeros, þúsundum ára fyrir Game of Thrones. Einn þáttur varð tekinn upp enn hann féll ekki í kramið hjá forsvarsmönnum HBO og var hætt við þáttaröðina. Síðan kom að House of the Dragon, sem hafa notið nokkurra vinsælda. Sjá einnig: House of Dragon slær áhorfsmet hjá HBO HBO tilkynnti svo í fyrra að gera ætti þætti sem kallast „A knight of the Seven kingdoms: The Hedge Knight“. Þeir byggja á smásögum sem George R.R. Martin hefur skrifað og gerast um hundrað árum fyrir Game of Thrones. Sagan fylgir eftir riddaranum Ser Duncan the Tall, sem kallast Dunk, og Aegon V Targaryen, sem kallast Egg og er skjaldsveinn Dunk. Sjá einnig: Kynntu nýja þætti úr söguheimi Game of Thrones og Harry Potter Í frétt Hollywood Reporter segir að tökur á þeim þáttum eigi að hefjast á þessu ári. Hefur mikið skrifað um Aegon George R.R. Martin hefur skrifað töluvert um sögu Aegon og systra hans í gegnum árin. Eins og með House of the Dragon er þó líklegt að hann muni hjálpa framleiðendum við að fylla upp í eyðurnar, sem finna má nóg af í skrifum hans um sögu Aegon. Mest hefur hann skrifað í bókinni Fire & Blood en hún fjallar um sögu Targaryen ættarinnar og byggja House of the Dragon einnig á henni, að miklu leyti.
Game of Thrones Tengdar fréttir Frægir rithöfundar höfða mál vegna ChatGPT Hópur þekktra rithöfunda eins og George R.R. Martin, Jodi Picoult og John Grisham hefur höfðað mál gegn fyrirtækinu OpenAI og sakað það um þjófnað á höfundarréttarvörðu efni sem notað var við þróun ChatGPT gervigreindarinnar. Rithöfundarnir segja gervigreindina byggja á kerfisbundnum og umfangsmiklum þjófnað. 21. september 2023 10:47 Martin bað forstjóra HBO um hundrað þætti af Game of Thrones George R.R. Martin, rithöfundurinn sem skrifaði Game of Thrones bókina og aðrar bækur í þeim söguheimi sem sjónvarpsþættirnir vinsælu byggja á, hafði áhyggjur af því að gera þyrfti fleiri þáttaraðir til að gera sögunni skil. Alveg eins og við hin! 30. nóvember 2021 21:40 Mest lesið Urður yfirgefur Kastljós Lífið Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Lífið Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Lífið Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Lífið Ben Jones er látinn Bíó og sjónvarp Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Lífið Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Lífið Aubrey Plaza orðin mamma Lífið Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Menning „Svolítið eins og að vera á annarri plánetu“ Ferðalög Fleiri fréttir Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Ben Jones er látinn Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Eftirlætis myndir Laufeyjar: „Mig dreymir um þetta augnablik“ Frumsýning: Íslensk stikla fyrir Um tímann og vatnið Gosling verður Skrattakollur Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Ali G snýr aftur Rýnt í stikluna: Smekkfull stikla af ofurhetjum Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Brjálaðar boltamömmur berjast Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bestu hlutverk Sams Neill: Andkristur, fornleifafræðingur og menn á barmi sturlunar Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Joanna Pettet er látin Pulp Fiction-stjarna heiðursgestur á RIFF Britney á stóra skjáinn Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Danny Glover með Alzheimer Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Sjá meira
Frægir rithöfundar höfða mál vegna ChatGPT Hópur þekktra rithöfunda eins og George R.R. Martin, Jodi Picoult og John Grisham hefur höfðað mál gegn fyrirtækinu OpenAI og sakað það um þjófnað á höfundarréttarvörðu efni sem notað var við þróun ChatGPT gervigreindarinnar. Rithöfundarnir segja gervigreindina byggja á kerfisbundnum og umfangsmiklum þjófnað. 21. september 2023 10:47
Martin bað forstjóra HBO um hundrað þætti af Game of Thrones George R.R. Martin, rithöfundurinn sem skrifaði Game of Thrones bókina og aðrar bækur í þeim söguheimi sem sjónvarpsþættirnir vinsælu byggja á, hafði áhyggjur af því að gera þyrfti fleiri þáttaraðir til að gera sögunni skil. Alveg eins og við hin! 30. nóvember 2021 21:40