Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Árni Sæberg skrifar 18. apríl 2024 09:31 Hildur Ýr er varaformaður Húseigendafélagsins. Hæstaréttarlögmaður segir frumvarp um húsaleigulög, sem ætlað er auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda, geta leitt til þess að húseigendur vilji síður leigja út eignir sínar. Þannig myndi framboð minnka og leiguverð hækka.
Hildur Ýr Viðarsdóttir hæstaréttarlögmaður og varaformaður Húseigendafélagsins ritar aðsenda grein hér á Vísi þar sem hún útskýrir hvað felst í frumvarpi innviðaráðherra um húsaleigulög, sem er nú í umsagnarferli. „Þó maður sé að lesa texta alla daga þá þurfti ég aðeins að liggja yfir þessu, til þess að sjá hvað þetta þýðir. Þess vegna ákvað ég að taka þetta saman á mannamáli, hvað þessar breytingar þýða,“ segir Hildur Ýr í samtali við Vísi. Meðal þess sem felst í frumvarpinu er að leigusala verði gert að skrá leigusamninga hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, ekki verði lengur heimilt að tengja leiguverð við vísitölu í tímabundnum leigusamningum og að aðilar að leigusamningi geti að tólf mánuðum liðnum farið fram á leiðréttingu leigufjárhæðar í samræmi við markaðsverð. Nái aðilar ekki saman falli það í skaut Kæruefndar húsamála að ákveða leiguverðið. „Mér finnst verið að ganga langt og leggja miklar skyldur á herðar leigusölum. Það eru gerðar kröfur um að það eigi að skrá leigusamninga og ef það gleymist þá varðar það sektum. Mér finnst mjög sérstakt að það eigi að skrá einkaréttarlega samninga. Svo er náttúrulega verið að skerða samningsfrelsið töluvert,“ segir Hildur Ýr. Hætta á að einstaklingar hætti leigusölu Húseigendafélagið hefur skilað inn ítarlegri umsögn um frumvarpið þar sem gerð er grein fyrir verulegum áhyggjum félagsins og alvarlegum athugasemdum við frumvarpið. Hildur Ýr segir félagið alls ekki leggjast gegn markmiði frumvarpsins um aukið húsnæðisöryggi. „En hættan er sú, af því að 65 prósent af leigumarkaðnum eru eignir sem Jón og Gunna úti í bæ eru að leigja, að Jón og Gunna nenni því ekki lengur. Ákveði að kaupa hlutbréf fyrir peninginn eða nota húsnæðið fyrir skammtímaleigu. Hættan er að þetta dragi úr framboði leiguhúsnæðis. Það mun gera stöðu leigjenda verri. Þannig gengur frumvarpið í raun gegn tilgangi sínum.“ Kærunefndin sprungin Sem áður segir gerir frumvarpið meðal annars ráð fyrir því að hægt verði að skjóta ágreiningi um hvað teljist sanngjörn leiga til Kærunefndar húsamála, þegar tólf mánuðir eru liðnir frá gildistöku leigusamnings. „Kærunefnd húsamála fjallar um ágreining vegna húsaleigu og ég veit að hún er að drukkna eins og staðan er núna. Og hvað þá þegar það á að leggja á þessa nefnd að ákveða hvað er rétt leiguverð,“ segir Hildur Ýr. Kærunefnd húsamála hefur einnig skilað inn umsögn um frumvarpið þar sem segir að verulegur málahali hafi safnast upp hjá nefndinni og því komi verulega á óvart að til standi að auka álagið á nefndinni. Núgildandi lög virki vel Í umsögn Húseigendafélagsins segir að nú sé talað hátt á torgum um að nauðsynlegt sé að bæta réttarstöðu leigjenda og að nauðsynlegt sé að breyta húsaleigulögunum í því skyni. „Núgildandi húsaleigulög virka þvert á móti vel og standa ekki á nokkurn hátt leiguviðskiptum fyrir þrifum. Þau eru eða voru öllu heldur í það heila sanngjörn í garð beggja samningsaðila. Hagsmunir leigjenda eru vel varðir og leiguréttur þeirra er mjög ríkur. Engum verður hent út fyrirvaralaust og geðþóttahækkun húsaleigu á sér ekki lagastoð,“ segir í umsögninni. Hildur Ýr segir að jafnvægi verði að vera á leigumarkaði, það sé best fyrir alla. Ef of mikið sé þrengt að leigusölum vilji þeir ekki leigja eignir sínar. „Þá er minna framboð og það bitnar líka á leigutökum. Þó að markmiðið sé göfugt með þessu frumvarpi þá held ég að það sé of langt gengið þarna.“
Leigumarkaður Húsnæðismál Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Alþingi Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira