Kröfðu Bayern um 100 milljónir fyrir þjálfarann Valur Páll Eiríksson skrifar 13. maí 2024 18:01 Glasner fer hvergi. EPA Bayern München leitar enn logandi ljósi að nýjum þjálfara til að taka við stjórnartaumunum í sumar. Crystal Palace á Englandi sendi liðinu skýr skilaboð þegar spurst var fyrir um þjálfara liðsins.
Austurríkismaðurinn Oliver Glasner, sem þjálfar Crystal Palace, virðist næstur á lista Bæjara eftir misheppnaðar tilraunir til að ráða Xabi Alonso, þjálfara Leverkusen, og Ralf Rangnick, þjálfara austurríska landsliðsins. Samkvæmt þýska miðlinum Bild krafðist Crystal Palace 100 milljóna punda frá Bayern til að losa Glasner undan samningi í Lundúnum. Hann sé því ekki á förum. Glasner tók við Palace af Roy Hodgson 19. febrúar síðastliðinn. Félagið hefur unnið sex af tólf leikjum undir hans stjórn og aðeins tapað þremur. Hann stýrði áður Wolfsburg og Eintracht Frankfurt í Þýskalandi og vann Evrópudeildina með síðarnefnda félaginu vorið 2022. Þjálfaraleit Bayern München heldur áfram um hríð en Thomas Tuchel er á förum frá félaginu þegar yfirstandandi leiktíð lýkur. Bayern horfði á eftir þýska meistaratitlinum í hendur Bayer Leverkusen og er þetta í fyrsta sinn í tólf ár sem liðið vinnur ekki þýska meistaratitilinn. Liðið féll út í 2. umferð þýska bikarsins eftir tap fyrir þriðju deildarliði Saarbrücken og tapaði í þýska ofurbikarnum fyrir RB Leipzig í upphafi leiktíðar. Eina von liðsins um titil var í Meistaradeild Evrópu en sú varð að engu eftir að liðið féll úr leik fyrir Real Madrid í undanúrslitum á dögunum.
Þýski boltinn Enski boltinn Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Fleiri fréttir City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Sjá meira