Hefur aldrei verið í vinnu en hefur verið iðinn við afbrot Ritstjórn skrifar 15. júlí 2024 14:14 Mohamad Kourani í Héraðsdómi Reykjaness þegar mál á hendur honum var þingfest. Vísir Mohamad Kourani, sem var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps og fjölda annarra brota, á enga fjölskyldu hér á landi, hefur aldrei verið í vinnu og hefur þegið opinbert fé til framfærslu. Innan við ári eftir komu til landsins hlaut hann sinn fyrsta refsidóm af þónokkrum.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjaness, sem kveðinn var upp í morgun. Með dóminum var Kourani dæmdur til átta ára fangelsisvistar en dómurinn var hegningarauki við annan dóm, sem hann hlaut aðeins örfáum dögum eftir að hafa framið hnífstunguárás í OK Market. Í kafla dómsins um ákvörðun refsingar segir að Kourani hafi samkvæmt sakavottorði verið dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir skjalafals þann 19. desember árið 2017. Hann hafi komið hingað til lands í upphafi sama árs. Líkamsárás, sprengjuhótanir, vopnalagabrot og margt fleira Þá hafi hann í Landsrétti þann 31. mars 2023 verið dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir líkamsárás, húsbrot, brot gegn nálgunarbanni, eignaspjöll, fimm brot gegn valdstjórninni, tvær sprengjuhótanir, skjalafals, vopnalagabrot, umferðarlagabrot og sjö brot gegn sóttvarnarlögum. Hann hafi lokið tólf mánaða afplánun þess dóms þann 26. janúar 2024. Eftir það hafi hann þann 14. mars síðastliðinn verið dæmdur í fjórtán mánaða fangelsi fyrir líkamsárás, valdstjórnarbrot, sprengjuhótun, tilraun til sprengjuhótunar og umferðarlagabrot. Sá dómur sæti áfrýjun fyrir Landsrétti. Hafi upplifað hrylling og djöfulskap Í dóminum segir að fyrir dóm hafi komið geðlæknir og dómkvaddur matsmaður sem hafi staðfest fyrir dómi matsgerð. Hann hafi kveðið engan vafa leika á því að Kourani væri sakhæfur í skilningi almennra hegningarlaga. Meira álitamál væri hvort ákvæði hegningarlaga um hvort refsing þjónaði tilgangi ætti við um Kourani. Kourani lýsi sig kerfisbundið saklausan af öllum sakargiftum, telji sig vera fórnarlamb í kerfinu og því sé honum allt leyfilegt. Hann geri sér fyllilega grein fyrir því sem hann gerir á hlut annarra, en sé gjörsamlega sama um allt og alla og teljist því fremur hættulegur einstaklingur. Hann hafi upplifað alls kyns hrylling og djöfulskap í sínu heimalandi, sem trufli hann eflaust í dag, en réttlæti með engu móti framferði hans hér á landi. Geðlæknirinn hafi kveðið erfitt að átta sig á hvað stýri hugsunum Kouranis og hvort hann geri sér upp suma hluti, svo sem áhyggjur af mafíunjósnum, en óháð því greinist engar ranghugmyndir hjá honum. Velti fyrir sér hvað ætti að gera við Kourani Hann hafi kveðist hafa skoðað ítrekað og mjög vandlega við vinnslu matsgerðar hvort áðurnefnd grein hegningarlaganna geti átt við um ástand Kouranis og komist að þeirri niðurstöðu að svo sé ekki. Kourani þurfi engu að síður mikla hjálp, komi til fangelsisrefsingar, en erfitt sé að vita hvernig höndla eigi einstakling eins og hann og hvernig unnt sé að hjálpa honum. Hann búi við alvarlegar persónutruflanir, en teljist ekki bráðveikur andlega, svo sem einnig megi ráða af því mati lækna á geðdeild Landspítala að útskrifa hann þaðan í júní á þessu ári eftir aðeins þriggja til fjögurra sólarhringa nauðungarvistun. Geðlæknirinn hafi verið spurður hvort og þá hvernig skýra mætti meinta og endurtekna hráka Kouranis, sem og það að hann virðist gera sér far um að skvetta þvagi á fangaverði. Í framhaldi hafi geðlæknirinn áréttað að Kourani væri sama um allt og alla, telji sig ekki skulda öðru fólki neitt og geri það sem hann vilji hverju sinni.
Mál Mohamad Kourani Dómsmál Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Fleiri fréttir Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Sjá meira