Bretar samþykkja sölu dýrafóðurs úr ræktaðri kjötvöru Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. júlí 2024 11:28 Við notum aðeins eggið og ekkert annað, auglýsir Meatly. Yfirvöld á Bretlandseyjum hafa veitt fyrirtækjunum Meatly og Omni heimild til að framleiða og selja dýrafóður sem er unnið úr kjöti sem hefur verið ræktað á tilraunastofu.
Samkvæmt Guardian er um að ræða fyrstu kjötvöruna sem ræktuð er á tilraunastofu til að rata á markað í Evrópu. Um er að ræða kjúklingakjöt sem hefur verið ræktað með því að taka sýni úr hænueggi og rækta frumurnar í svipuðum búnaði og notaður er til að gerja bjór. Í framleiðsluferlinu er vítamínum og amínósýrum bætt við og útkoman er kjötvara sem líkist kæfu. Meatly og Omni segjast gera ráð fyrir að setja vöruna á markað á þessu ári og einbeita sér svo að því að stækka við sig og auka framleiðsluna á næstu árum. Talið er að það muni hugnast mörgum dýraeigendum- og vinum að geta keypt dýrafóður sem er unnið úr frumum, frekar en dýrahræjum. Breskir sérfræðingar segja að frekari rannsókna sé þörf áður en hægt verður að samþykkja framleiðslu og sölu ræktaðra kjötvara sem ætlaðar eru mönnum. Hins vegar hafa nokkur önnur ríki, þeirra á meðal Ísrael og Singapore, þegar heimilað sölu slíkra vara.
Bretland Matvælaframleiðsla Dýr Dýraheilbrigði Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Alls kyns jól um allan heim Erlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Fleiri fréttir Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjá meira