Lægð við austurströnd en allt að 18 stig norðaustantil Lovísa Arnardóttir skrifar 13. ágúst 2024 07:12 Norðaustantil verður bjart með köflum og stöku skúrir. Þar getur náð 18 stigum þegar best lætur. Vísir/Vilhelm Lægð er nú stödd við austurströnd landsins og þokast norður á bóginn. Þá snýst smám saman í suðvestangolu og dregur úr úrkomu. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að skýjað verði í dag og víða dálítil væta af og til, milt veður.
Norðaustantil verður bjart með köflum og stöku skúrir. Þar getur náð 18 stigum þegar best lætur samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings. Þá nálgast lægð landið á morgun, með austan- og suðaustankalda og fer að rigna í flestum landshlutum, en yfirleitt úrkomuminna fyrir norðan. Hiti breytist lítið. Á vef Vegagerðarinnar sést að greiðfært er um nærri allt land en best er að fylgjast með vef Vegagerðarinnar um framkvæmdir og færð vega. Um veður er hægt að fá nánari upplýsingar á vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðaustan og austan 8-15 m/s, hvassast syðst. Víða rigning eða skúrir, en úrkomuminna fyrir norðan. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á fimmtudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 og rigning með köflum, en skúrir norðaustantil. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast norðaustanlands. Á föstudag: Norðan og norðvestan 5-10 og dálítil rigning eða súld, en bjart með köflum sunnan heiða. Hiti 7 til 17 stig, mildast syðst. Á laugardag, sunnudag og mánudag: Norðlæg átt og dálítil rigning eða súld af og til. Bjart með köflum sunnanlands, en líkur á skúrum. Kólnandi veður.
Veður Færð á vegum Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira