Treble sækir tæpa tvo milljarða Árni Sæberg skrifar 3. september 2024 11:04 Stofnendur Treble, frá vinstri til hægri: Jesper Pedersen, Ingimar Andersen, dr. Finnur Pind og Gunnar Hauksson. Treble Nýsköpunarfyrirtækið Treble Technologies, sem þróað hefur hugbúnað á sviði hljóðhermunar, lauk nýverið ellefu milljón evra A fjármögnunarlotu, jafnvirði 1,7 milljörðum króna, með þátttöku erlendra og innlendra fjárfesta. Fjármagnið verður nýtt til að ráða fleira starfsfólk, efla rannsóknar- og þróunarstarf, skala upp söluteymi og sækja á nýja markaði. Meðal viðskiptavina félagsins eru stærstu tæknifyrirtæki heims.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að fjármögnunarlotan hafi verið leidd af KOMPAS VC, sem sé leiðandi evrópskur vísisjóður sem sérhæfi sig í fjármögnun öflugra nýsköpunarfyrirtækja tengdum byggingar- og framleiðsluiðnaði. Aðrir fjárfestar sem tóku þátt í þessari lotu hafi verið fjárfestingafélag þeirra Andra Sveinssonar og Birgis Más Ragnarssonar, Omega ehf, vísissjóðurinn Frumtak Ventures, sem hafi leitt síðustu fjármögnunarlotu Treble, Evrópska nýsköpunarráðið auk reyndra einkafjárfesta. Jafnframt hafi Saint-Gobain og L-Acoustics, sem séu samstarfsfyrirtæki Treble, tekið þátt í fjármögnuninni. Saint-Gobain sé eitt stærsta fyrirtæki Evrópu, sem framleiðir vörur og lausnir fyrir byggingar- og bílaiðnaðinn, og L-Acoustics sé stærsti hljóðkerfaframleiðandi heims. Treble þrói hugbúnað sem hermir hegðun hljóðs með áður óþekktri nákvæmni og hraða. Lausnin geri viðskiptavinum kleift að herma og hanna hljóð í hvers kyns þrívíddarmódelum og er því sérstaklega gagnleg við hönnun bygginga, bíla og tæknivara. Með slíkri hermun sé hægt að meta hvernig ákveðin hönnun, hvort sem það er hönnun byggingar, bíls, heyrnartækis, sýndarveruleikagleraugna eða sjónvarps, svo dæmi séu tekin, komi til með að hljóma áður en framleiðsla hefst. Tækni Treble sé einnig nýtt til þjálfunar gervigreindar, til dæmis þjálfun raddstýringa, snjallhátalara og talgreiningar. Alþjóðlegir risar nota tæknina nú þegar Meðal viðskiptavina sem nýta tæknilausn Treble, sem kom á markað í fyrra, séu nokkur af stærstu og þekktustu fyrirtækjum heims á sviði tækni-, bygginga-, hljóð- og bifreiðaframleiðslu. Innan þeirra raða sé til dæmis stærsta verkfræðistofa heims, þrjú af fimm stærstu tæknifyrirtækjum í heimi og einn stærsti bifreiðaframleiðandi heims. Hingað til hafi almennt verið kostnaðarsamt að hanna hljóð og hljóðvist. Það megi rekja til þess að ekki hafi verið til einföld, notendavæn og nákvæm hugbúnaðartól til að herma hljóð. Ef byggingar eða vörur uppfylla ekki nauðsynlega hljóðstaðla geti verið tímafrekt og kostnaðarsamt að gera óhjákvæmilegar lagfæringar eftir að hús hafa verið reist eða þegar vörur eru tilbúnar úr framleiðslu. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hafi bent á að hávaði sé næstskaðlegasti umhverfisþátturinn sem hefur áhrif á heilsu manna. Það sé því mikilvægt að bregðast við þessum vanda. Treble hafi verið stofnað árið 2020 af hljóðverkfræðingunum dr. Finni Pind og Jesper Pedersen, ásamt Ingimari Andersen hugbúnaðarverkfræðingi og Gunnari Haukssyni sérfræðingi í viðskiptaþróun. Rætur Treble liggi aftur til margra ára rannsóknarstarfs í háskólaumhverfinu á árunum fyrir 2020. Árið 2023 hafi fyrirtækið gefið út sína fyrstu vöru, sem sé sú fyrsta og eina sinnar tegundar í heiminum sem býður upp á hljóðhermun í skýinu. Hljóðhermunartækni Treble sé einkaleyfisvarin og meira en eitt hundrað sinnum hraðari en fyrri hljóðhermunarlausnir. Stór áfangi „Heimurinn gæti hljómað svo mun betur en hann gerir nú og það er gífurleg þörf á því að draga úr hávaðamengun. Markmið okkar hjá Treble er að bjóða upp á tólið sem gerir þessum mismunandi geirum – byggingum, bílum og tækni – kleift að hanna betri hljóðlausnir og draga úr hávaða. Það mun skila sér í bættri heilsu fólks, vellíðan og framleiðni. Lausnin okkar bætir líka upplifun fólks þegar það tengist öðrum í gegnum netið og stuðlar þannig að betri samskiptum og meiri tengingu milli fólks,“ er haft eftir dr. Finni Pind, stofnanda og framkvæmdastjóra Treble. Fjármögnunarlotan sé stór áfangi fyrir Treble. Hún staðfesti stöðu félagsins sem leiðandi nýsköpunarfyrirtæki í hljóðgeiranum, sýni hvers megnugt Treble teymið sé og geri félaginu kleift að halda ótrautt áfram. „Við munum áfram vinna náið með samstarfsaðilum og viðskiptavinum okkar til að þróa framtíð hljóðs og skapa hljómbetri heim.“ Hlakka til að fylgjast með Treble „Fjárfesting okkar í Treble er í takt við þá stefnu okkar að stuðla að heilbrigðu og sjálfbæru umhverfi. Að okkar mati er Treble brautryðjandi þegar kemur að hljóðhönnun með sinni nýstárlegu tækni. Lausn þeirra gerir það að verkum að hægt er að vinna að frumgerðum og prófa vörur á mun betri máta en áður. Fyrirtækið er að sækja fram á feykilega stóran markað. Við hlökkum til að fylgjast með Treble, og því hæfileikaríka starfsfólki sem þar starfar, halda áfram að slá rétta tóninn,“ er haft eftir Sebastian Peck, meðeiganda hjá KOMPAS.
Nýsköpun Tækni Mest lesið Staðfesta þunga sekt vegna tuga dulinna auglýsinga Viðskipti innlent Hagvöxtur mun minni en reiknað var með Viðskipti innlent Áhrif foreldra á starfsframa og velgengni barna sinna Atvinnulíf Reisa minnst 2.600 fermetra á Völlunum á tólf mánuðum Viðskipti innlent Kári lætur af störfum sem forstjóri PCC á Bakka Viðskipti innlent Engar Robin klementínur á landinu þessi jól Neytendur Paramount, Comcast og Netflix vilja kaupa Warner Viðskipti erlent Mun fljúga milli Keflavíkur og Montreal næsta sumar Viðskipti innlent Nýr sameinaður lífeyrissjóður verði með þeim stærstu Viðskipti innlent Lífeyrissjóður tannlækna sameinast Frjálsa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Staðfesta þunga sekt vegna tuga dulinna auglýsinga Kári lætur af störfum sem forstjóri PCC á Bakka Reisa minnst 2.600 fermetra á Völlunum á tólf mánuðum Lífeyrissjóður tannlækna sameinast Frjálsa Mun fljúga milli Keflavíkur og Montreal næsta sumar Hagvöxtur mun minni en reiknað var með Nýr sameinaður lífeyrissjóður verði með þeim stærstu Ráðinn verkefnastjóri stórfjárfestinga Skýrt að verndarráðstafanir þurfi að ná yfir alla utan tollabandalags Fæstir hlynntir veru Rúv á auglýsingamarkaði Kaupsamningar fleiri í október þrátt fyrir óvissu á lánamarkaði Alvotech tekur dýfu eftir uppgjör Ráðinn framkvæmdastjóri upplýsingatækni hjá Styrkás Sendafélagið kaupir 4G og 5G dreifikerfi Sýnar og Nova Auknar tekjur en nýta sér 12,7 milljarða veltufjármögnun Búi sig undir að berja í borðið Bindur vonir við „plan B“ Klístruð gólf og mygla meðal þess sem felldi Alvotech Spá að stýrivextir haldist óbreyttir Markaðurinn telur taumhaldið of þétt en býst ekki við lækkun Stöðva rekstur Vélfags Milljón króna sekt fyrir að reka gistiheimili án leyfis Ráðinn aðstoðarsköpunarstjóri Hvíta hússins Ráðin framkvæmdastýra Ljósleiðarans Lögleiða þurfi netspilun til að ná stjórn á ástandinu Aldrei mikilvægara að fylgjast vel með lánunum Fundu „þjóðaröryggis-málma“ á Grænlandi Vélfag hafi ítrekað grafið undan eigin undanþágu Hallgrímur Örn og Bára Hlín til atNorth Vélfagi synjað um frekari undanþágur frá þvingunaraðgerðum Sjá meira