Bónus og Jysk ríða á vaðið í Korputúni Árni Sæberg skrifar 9. september 2024 10:54 Frá vinstri: Björn Ingi Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Jysk á Íslandi, Þórarinn Ólafsson, framkvæmdastóri Lagerinn Iceland, Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Birgir Þór Birgisson framkvæmdastjóri þróunar hjá Reitum og Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónus Reitir Forsvarsmenn Bónuss og Jysk hafa samið við Reiti um verslunarhúsnæði í Korputúni. Vegagerð er þegar hafin í nýju atvinnuhverfinu, sem rísa mun við Vesturlandsveg á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar. Svæðið tilheyrir Blikastaðalandi í Mosfellsbæ þar sem fyrirhuguð er umfangsmikil uppbygging nýs íbúðahverfis.
Í fréttatilkynningu segir að Reitir fasteignafélag sé eigandi þróunarsvæðisins og fari fyrir uppbyggingunni. Jysk hafi undirritað viljayfirlýsingu við Reiti um kaup á lóðum á svæðinu og Bónus hafi undirritað viljayfirlýsingu varðandi nýtt verslunarhúsnæði í hverfinu undir rekstur matvöruverslunar. Korputún sé skipulagt út frá þörfum fólks og náttúrunnar en ekki síður út frá hefðbundnum þáttum, svo sem aðgengi, vöruflutningum og sýnileika. Samgönguás Borgarlínu muni liggja í gegnum skipulagssvæðið með Borgarlínustöð við verslunarkjarna svæðisins. Korputún mun rísa á milli Reykjavíkur og Mosfellsbæjar.Reitir Höfuðstöðvar og verslun Forsvarsmenn Bónuss hafi lýst yfir vilja til þess að verslun félagsins verði þar kjölfesta til framtíðar. Í verslunarkjarnanum verði jafnframt til leigu veitingarými og húsnæði fyrir aðra hverfisverslun og þjónustu. Þá hafi Lagerinn Iceland, sem er móðurfélag Jysk á Íslandi, undirritað viljayfirlýsing við Reiti um kaup á lóðum þar sem gert sé ráð fyrir ríflega sautján þúsund fermetra byggingarmagni. Á lóðunum hyggist félagið byggja nýjar höfuðstöðvar ásamt vöruhúsi og verslun fyrir Jysk. Jafnframt sé gert ráð fyrir plássi fyrir aðrar verslanir á lóðinni auk skrifstofu- og þjónusturýmis. Reiknað sé með að í hverfinu verði bæði tilbúið og klæðskerasniðið leiguhúsnæði í boði ásamt möguleika á að kaupa lóðir til uppbyggingar. Mikilvægt að vernda dýralífið „Höfuðborgarsvæðið er í mikilli þróun, ekki síst í norður- og austurhluta þar sem m.a. mun rísa byggð í Blikastaðalandinu og svo Keldnaholti þegar fram líða stundir. Þetta mun auka enn frekar þörf fyrir verslun og þjónustu á svæðinu. Korputún leikur mikilvægt hlutverk í þessari uppbyggingu með blómlegu atvinnulífi í nýju og vönduðu hverfi enda verður nýja atvinnuhverfið gífurlega vel staðsett og býður mikil tækifæri fyrir ólíka aðila,“ er haft eftir Guðna Aðalsteinssyni, forstjóra Reita. Á sama tíma sé starfsfólk Reita mjög stolt af því að Korputún verði fyrsta atvinnuhverfið á landsvísu sem er skipulagt samkvæmt kröfum BREEAM Communities vistvottunarstaðalsins. Við skipulag hverfisins hafi verið lögð mikil áhersla á að lágmarka rask á vatnsmagni sem rennur í Korpu og unnin hafi verið vönduð viststefna fyrir hverfið. „Neðst í landinu, nálægt Korpu, er fallegt svæði með miklu dýralífi sem mikilvægt er að vernda.“ Korputún verði frábært verslunarsvæði Haft er eftir Birni Inga Vilhjálmssyni, framkvæmdastjóra Jysk, að fyrirtækið leiti stöðugt tækifæra til að auka þjónustu við viðskiptavini þess, „Að vera nær viðskiptavinum er hluti af okkar stefnu og uppbygging Jysk í Korputúni gerir okkur kleift að þjóna íbúum Mosfellsbæjar, Norðlingaholts og Grafarholts mun betur en áður. Íbúafjöldi á þessum svæðum hefur vaxið mikið á síðustu árum og með tilkomu uppbyggingar á Blikastaðalandi er fyrirséð frekari fjölgun íbúa. Korputún hefur allt til að bera til að verða frábært verslana- og þjónustusvæði og mun styðja við áframhaldandi vöxt JYSK.“ Þá er haft eftir Björgvini Víkingssyni, framkvæmdastjóra Bónuss, að Blikastaðaland sé eitt af framtíðarbyggingarsvæðum höfuðborgarsvæðisins og fyrirtækið sjái áhugaverð tækifæri í opnun verslunar þar undir nafni Bónuss. „Þannig hyggjumst við þjóna íbúum með góðu úrvali matvöru á lægsta mögulega vöruverði, hér eftir sem hingað til.“
Verslun Reykjavík Mosfellsbær Hagar Matvöruverslun Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sjá meira