Innlent

Hafa „góða hug­mynd“ hvar og hve­nær stúlkunni var ráðinn bani

Atli Ísleifsson skrifar
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Vísir/Arnar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur sig hafa „góða hugmynd“ um hvar og hvenær tíu ára stúlku, sem fannst látin við Krýsuvíkurveg á sunnudagskvöld, hafi verið ráðinn bani.

Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Hann segir að rannsókn á málinu miði vel.

Grímur segir að nokkurt magn myndefnis hafi borist lögreglunni, en óskað var eftir myndefni frá vegfarendum sem óku um Krýsuvíkurveg, á milli Vallahverfis í Hafnarfirði og Vigdísarvallavegar, á milli klukkan 13 og 18 á sunnudaginn. Hann segir myndefnið sem hafi borist fyrst og fremst vera úr bílum. Unnið sé að því að fara yfir efnið.

„Rannsókninni miðar vel og er í eðlilegum farvegi,“ segir Grímur.

RÚV greinir frá því í dag að faðir stúlkunnar, sem er í haldi grunaður um að hafa banað dóttur sinni, hafi verið metinn sakhæfur samkvæmt bráðabirgðageðmati. Aðspurður segir Grímur að hann geti ekki tjáð sig um það að svo stöddu.

Lögregla yfirheyrði föðurinn síðast á miðvikudagskvöld en hann tilkynnti lögreglu sjálfur um málið á sunnudaginn.


Tengdar fréttir

Óska eftir myndefni af Krýsuvíkurvegi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir myndefni frá vegfarendum sem óku um Krýsuvíkurveg, á milli Vallahverfis í Hafnarfirði og Vigdísarvallavegar, á milli klukkan 13 og 18 á sunnudaginn. Upp úr klukkan átján tilkynnti maður að hann hefði orðið dóttur sinni að bana og var handtekinn við Krýsuvíkurveg.

Lögregla komin með ágæta mynd af atburðum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur sig vera komna með ágæta mynd af atburðum í tengslum við andlát tíu ára stúlku sem fannst látin í Krýsuvík á sunnudagskvöld. Faðir stúlkunnar, sem grunaður er um að hafa ráðið henni bana, hefur ekki verið yfirheyrður síðan á sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×