Þetta kom fram á blaðamannafundi í Safnahúsinu í morgun þar sem Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu og staðgengill formanns, gerðu grein fyrir yfirlýsingu peningastefnunefndar.
Peningastefnunefnd ákvað að loknum fundum sínum síðustu tvo daga að lækka stýrivexti um 0,25 prósentustig, eftir að vextir höfðu staðið í stað í rúmt ár.
Allt bendi í sömu átt
Á fundinum voru þau Ásgeir og Rannveig meðal annars spurð hvort þau hefðu áhyggjur af því að verið væri að hleypa eftirspurn of hratt af stað á sama tíma og mæld verðbólga minnkar helst vegna áhrifa tilfærslna frá hinu opinbera til heimilanna.
Ásgeir segir rétt að sú opinbera tilfærsla sem átti sér stað með gerð kjarasamninganna síðastliðið vor hafi ýtt undir neyslu. Hins vegar hafi einskiptisliðir vegna þeirra ekki verið það sem rak áfram ákvörðun peningastefnunefndar.
„Heldur eru í rauninni allir mælikvarðar farnir að benda nokkurn veginn í sömu átt. Það virðist vera að eftispurnin sé á leiðinni niður, það virðist líka vera að vinnumarkaðseftirspurnin sé á leiðinni niður. Það er helst byggingageirinn sem kallar eftir fólki eins og staðan er núna. Verðbólga er að minnka á flesta mælikvarða. Svo það sé alveg skýrt, nefndin fremur lítur fram hjá þessum einskiptisliðum varðandi verðbólguna.“
Nefndin sátt með aðhaldsstigið
Í yfirlýsingu peningastefnunefndar segir að þrálát verðbólga, verðbólguvæntingar yfir markmiði og mikil innlend eftirspurn kalli á varkárni. Áfram þurfi því að viðhalda hæfilegu aðhaldsstigi til þess að koma verðbólgu í markmið innan ásættanlegs tíma.
Hvað þetta varðar sagði Ásgeir á fundinum að nefndin sé ánægð með núverandi aðhaldsstig og telji það nægilegt til að ná verðbólgumarkmiði innan ásættanlegs tíma.
„Þetta eru 25 punktar. Það er verið að fara af stað af varkárni í þetta ferli. Ef hlutirnir fara á móti okkur þá náttúrulega mun ferlið stöðvast. Stýrivextir eru núna níu prósent, sem eru mjög háir stýrivextir. Það er verið að feta sig áfram.“
Vildu prófa þetta og sjá hvað gerist
Rannveig sagði á fundinum að það væri ekki mikið sem hefði breyst á milli vaxtaákvarðana og engar sterkar vísbendingar væru um að undirliggjandi verðbólga hefði hjaðnað. Þjóðhagsreikningar sem sést hafi séu á svipuðu róli og nefndin hefði spáð.

Mismunandi væri hvað hver og einn nefndarmaður horfi í þegar kemur að vaxtaákvörðunum og hvað skiptir hann máli.
„Ýmsir þættir sem eru þá að skipta máli fyrir hverni og einn. Hafa breyst og tekið það stór stökk að við vildum taka þetta skref, prófa þetta og sjá hvað gerist. Umræðan um lítil eða stór skref hún hefur, eins og ég sagði á síðasta fundi, eiginlega ekki verið inni í nefndinni.“
Ákvörðun bankanna hafði áhrif á Ásgeir
Ásgeir greip þennan bolta á lofti og útskýrði hvað það hefði verið sem hann leit helst til við ákvarðanatökuna.
„Fyrir mig hefur hækkun verðtryggðra útlánavaxta mikla þýðingu. Vegna þess að stór hluti af verðbólgunni sem nú er til staðar er vegna hækkunar á fasteignaverði. Það að það skuli koma svona mjög öflug leiðni í verðtryggð útlán náttúrulegar leiðir til að það hlýtur að hafa töluverð áhrif á fasteignamarkaðinn. Þannig að við erum að sjá sterkari leiðni í þann þátt sem er að valda mestri verðbólgu, sem er fasteignamarkaðurinn.“