Siddhi: Yfirnáttúrulegir hæfileikar Gísli Hvanndal Jakobsson skrifar 26. október 2024 14:31 Síðan ég skrifaði greinina ,,Hver er ég?" þá hef ég fengið fullt af póstum og beiðnum um að skrifa fleiri dulrænar, heimspekilegar eða andlegar greinar. Og ástæðan fyrir því er sú að enginn þorir að skrifa svona greinar eða hleypa sér opinberlega inn á þessi svið. Ég fékk að vita að þessi grein hafði mikil áhrif á fólk eins og vekjaraklukka þar sem það fór að hugsa sjálfstætt um hlutina en ekki bara hvað aðrir segja þeim að sé rétt. En greinin er full af spurningum til lesandans en ekki fullyrðingum sem ég reyni að koma á fólk. Búddha sagði það best: ,,Ekki trúa neinum, ekki einu sinni mér." Ósk mín er sú að ég vil að fólk átti sig sjálft á því afhverju hann sagði það, en svarið leynist í fyrri grein minni. Þá er miklum áfanga náð á andlegu brautinni. En málið er að það er örsjaldan sem ég ákveð að skrifa grein. Oftast vakna ég snemma morguns og það er eins og greinin sé tilbúin í huga mínum og 30 mínútum seinna er hún komin niður á blað. Ég var búin að ákveða að skrifa bók á næsta ári um andleg málefni en get látið eina og eina grein frá mér vìst það er áhugi fyrir því og ég tengist þeim beint. En trúir þú því að það sé hægt að ganga á vatni, fljúga eða svífa í loftinu, gera sig ósýnilegan, ganga í gegnum veggi, fara frá einum stað til annars með viljamættinum einum, stjórna hugsunum og vilja annarra, lesa hugsanir, framkalla hvaða hlut sem þú vilt úr loftinu, lækna sjúkdóma og jafnvel rísa fólk upp frá dauðum svo eitthvað sé nefnt? Það skiptir í raun ekki hvort ég sjálfur eða þú trúir því. Margir vesturlandabúar og fólk úr austrinu eins og yogar og gúrúar trúa því og virðast oft framkalla svona verk fyrir almenning. En þessir yfirnáttúrulegu hæfileikar eru kallaðir Siddhis. Siddhis eru sagðir óvenjulegir kraftar eða hæfileikar sem hægt er að ná í gegnum háþróaða jógaiðkun. Orðið "Siddhi" á sanskrít þýðir "fullkomnun" eða "árangur". Þessir kraftar eru taldir vera náttúrulegar aukaafurðir ákveðins háþróaðs meðvitundarástands sem náðst hefur með jógískum æfingum. Þannig að Yogar hafa þann skilning að þessir hæfileikar eru mjög svo náttúrulegir og eðlilegir á meðan ég og þú sjáum þá sem kraftaverk eða töfra. Sagt er að sumir útvaldir einstaklingar hafi komist yfir leyndarmál sem opna fyrir þessa hæfileika og misnoti þá og selja sig sem ótrúlega töframenn eða sjónhverfingamenn eins og Criss Angel: https://youtu.be/Trvvm1B5WNM?si=6UWWW2rS-e1NJxdX Á þessu vídeói má einmitt sjá hann fljúga í loftinu og enginn virðist fatta hvernig hann gerir það. En hvort sem það er ,,Siddhis" eða ekki sem Criss Angel notar að þá er hann mjög svo áhugaverður einstaklingur. Og hér má sjá hann ganga á vatni: https://youtu.be/rvk9N4PxU6U?si=2UHAYFh-LbTgMEpO Og það áhugaverðasta við það er að fólk syndir undir hann ,gengur fyrir framan og á eftir honum. Allavega að þá hef ég haft gaman af svona, sérstaklega þegar ég var yngri. Hinir yfirnáttúrulegu hæfileikar Siddhis eru almennt séðir sem mikill máttur til að stjórna sjálfum sér, öðru fólki í góðum tilgangi og náttúrunni sjálfri meira að segja. Sagt er að þrátt fyrir að þessi máttur virðist vera yfirnáttúrulegur, þá séu þeir í raun aðgengilegir öllum mönnum og að það sé hægt að útskýra þá á skynsamlegan hátt. Þessir hæfileikar koma upp á náttúrulegan hátt með andlegum æfingum og þegar ákveðinn skýrleiki hugans verður að veruleika. Siddhi er mikilvægt hugtak í búddisma, hindúisma og jógískum kenningum. Búdda kenndi að það eru tvær tegundir af siddhis: Venjulegt siddhis - kraftar heimsins sem umbreyta frumefnum; og síðan Óvenjulegt siddhis - hæfileikinn til að opna fyrir sannleikann sem leiðir til skilnings og uppljómunar, Nirvana. Eins og ég sagði áðan að þá getur Siddhi verið mikill máttur og kraftur eins og krafturinn til að fljúga, verða ósýnilegur eða ganga á vatni. Búdda segir að andlegi iðkandinn þurfi að ná fullkomnun í andlegri iðkun sinni, koma sjálfum sér í það ástand þar sem hugsanir hans eru í algjörri kyrrstöðu. Í jóga sútra Patanjali er ferlið við að ná ýmsum mismunandi siddhis lýst í smáatriðum. Sagt er að hægt sé að ná þeim í gegnum: Fæðingu, að sumt fólk geti fæðst með þessa andlegu hæfileika eða krafta vegna karma þeirra eins og Sathya Sai Baba sem ég kom inn á í síðustu grein minni. Einnig í gegnum ákveðnar jurtir og ofskynjunarefni þó það sé alls ekki mælt með því vegna þess að það er mikil óvissa þegar kemur að svoleiðis hegðun og einstaklingurinn getur verið að opna fyrir eitthvað sem hann er ekki tilbúinn fyrir og jafnvel orðið geðveikur vegna þess. Möntrur og sjálfsagi - notkun þulna eða annarra andlegrar iðkunar getur þróað siddhis á sem ,,eðlilegastan og æskilegastan hátt." Ég verð að viðurkenna að þessi mál hafa heillað mig frá unga aldri því miðilshæfileikar eru bara dropi af Siddhis. Sumir ákveða að verða miðlar og eru þar alla ævi. Aðrir halda þessu fyrir sig eða hætta að miðla og fara inn á nýjar slóðir. Nýtt Andlegt ævintýri. Allavega þá langaði mig að segja ykkur frá Siddhis en það er ein Yogagrein sem er sérstaklega hönnuð til að vekja upp þessa hæfileika. Ég læt lesandann sjálfann fara í þessa andlegu leit. En ef þú ætlar að ganga veg Yoga (Einingar] að þá mæli ég með að þú lesir og kynnir þér fyrst Jnaniyoga (Yoga visku og þekkingar). Í Jnaniyoga hefst fyrir alvöru hið stórkostlega ævintýri andans. Hin hliðin á heiminum, töfrahliðin. Kannski næsta grein verður um allar greinar yoga? Vonandi höfðu þið gaman við lesturinn. Gísli Hvanndal Jakobsson Höfundur er eilífðarstúdent Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun