Innlent

Óvissustig á Hellis­heiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Hálkublettir eru á Hellisheiði og í Þrengslum og hálka á Mosfellsheiði.
Hálkublettir eru á Hellisheiði og í Þrengslum og hálka á Mosfellsheiði. Vísir/Vilhelm

Norðvestan hvassviðrði eða stormur er að ganga yfir landið í dag og gular eða appelsínugular viðvaranir verða í gildi í öllum landshlutum á einhverjum tímapunkti næsta sólarhringinn og gott betur.

Gular viðvaranir hafa þegar tekið gildi á vestanverðu landinu, þar með talið á höfuðborgarsvæðinu, en veðrið færist svo yfir landið þegar líður á daginn og í kvöld eru appelsínugular viðvaranir í gildi á norðurhelmingi landsins og á suðausturlandi. 

Þar er spáð stórhríð með vindhraða upp á allt að 28 metra á sekúndu og snjókomu og lélegu skyggni og því taldar miklar líkur á samgöngutruflunum. Ekkert ferðaveður, að sögn Veðurstofunnar. 

Vegagerðin vekur athygli á því að á Mosfellsheiði, í Þrengslum og á Hellisheiði er óvissustig í gildi frá klukkan sjö og fram til klukkan ellefu. Þar getur því komið til lokana með stuttum fyrirvara. 

Flestum komum og brottförum til og frá Keflavíkurflugvelli hefur verið aflýst eða frestað fram yfir hádegið. Nánari upplýsingar er að finna á vef flugvallarins. Sömu sögu er að segja af innanlandsfluginu.

Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Norðan 8-15 m/s, en 15-23 austanlands fram eftir degi. Snjókoma með köflum, en þurrt á Suður- og Vesturlandi. Dregur úr ofankomu seinnipartinn, hiti um eða undir frostmarki.

Á sunnudag, mánudag og þriðjudag: Norðan 8-15 og él, en þurrt að kalla sunnan heiða. Frost 2 til 10 stig.

Á miðvikudag: Norðlæg átt og snjókoma með köflum um landið norðaustanvert, annars úrkomulítið. Áfram kalt í veðri.

Á fimmtudag: Vestlæg átt og stöku él við ströndina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×