Lífið

Edrú í eitt ár

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Patrekur Jaime hefur aldrei verið betri.
Patrekur Jaime hefur aldrei verið betri. Vísir/Vilhelm

Sjónvarps- og samfélagsmiðlastjarnan Patrekur Jaime hefur verið án áfengis í eitt ár. Þessu greinir hann frá á samfélagsmiðlinum Instagram í einlægri færslu.

„Fyrir ári síðan tók ég þá ákvörðun að hætta drykkju eftir að hafa vitað í dágóðan tíma að ég kunni ekki að fara með vín. Æði gaf mér margt en það sem var mest gefandi var að geta séð sjálfan mig frá öðru sjónarhorni,“ skrifar Patrekur. Þar vísar hann til sinna vinsælu þátta á Stöð 2 þar sem hann hefur farið mikinn með félögum líkt og Binna Glee og Bassa Maraj.

„Á þessu ári hef ég farið í mikla sjálfsvinnu og mér hefur aldrei liðið betur, skemmt mér eins vel og átt eins góð samskipti við vini og fjölskyldu. Ég hefði aldrei getað þetta án fjölskyldu minnar, fyrrverandi unnusta og gömlu sem nýju vina minna. Get ekki beðið eftir spennandi tímum á næsta ári.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×