Innlent

Sexfalda greiðslur í fyrstu tækni­frjóvgun og tæknisæðing telur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Tilkynningum rignir inn á vef Stjórnarráðsins eftir lok þingsins í gær. Meðal þess sem gerðist á lokametrunum var nýja reglugerðin um tæknifrjóvganir.
Tilkynningum rignir inn á vef Stjórnarráðsins eftir lok þingsins í gær. Meðal þess sem gerðist á lokametrunum var nýja reglugerðin um tæknifrjóvganir. Vísir/Vilhelm

Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, hefur birt í samráðsgátt drög að nýrri reglugerð um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tæknifrjóvganir, sem veittar eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.

Í reglugerðinni er kynnt nýtt fyrirkomulag á greiðsluþátttöku vegna tæknifrjóvgana, auk þess sem greiðsluþátttaka er aukin. Samkvæmt núgildandi reglugerð er greiðsluþátttaka 5% vegna fyrstu tæknifrjóvgunarmeðferðar (24 þúsund krónur) og 65% af 2.-4. meðferð (312 þúsund krónur). 

Í drögum að nýrri reglugerð er lagt til að taka upp fastan krónutölustyrk í stað prósentuhlutfalls og að greiðsluþáttaka verði 150 þúsund krónur fyrir fyrstu tæknifrjóvgunarmeðferð og 400 þúsund krónur fyrir hverja meðferð frá 2.-4. meðferð. Þá er sérstaklega tekið fram að tæknisæðing falli undir gildissvið reglugerðarinnar.

Með breytingunum yrði greiðsluþátttaka í fyrstu tæknifrjóvgunarmeðferð aukin sexfalt og þátttaka sjúkratrygginga í meðferðum 2-4 aukin um tæpar 90 þúsund krónur í hverri meðferð. Hærri greiðsluþátttaka yrði þeim einstaklingum, sem sækja þessa kostnaðarsömu þjónustu, til verulegra hagsbóta auk þess sem fjárhæð greiðsluþátttöku verður fyrirsjáanlegri en áður með föstum styrkjum.

Umsagnarfrestur er til 2. desember en stefnt er að því að reglugerðin taki gildi 1. janúar 2025.


Tengdar fréttir

Dásamlegt að koma heim með barnið sem hún þráði svo lengi

Svava Kristín Grétarsdóttir íþróttafréttakona á Stöð 2 eignaðist frumburð sinn, Andreu Kristnýju, þann 14. janúar síðastliðinn, eftir að hafa reynt að eignast barn í nokkur ár með aðstoð fyrirtækisins Livio.

Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi

Sunna frjósemi hefur fengið samþykkt starfsleyfi frá heilbrigðisráðuneytinu og mun formlega opna frjósemisstofu í Evuhúsi í Urðarhvarfi á haustmánuðunum. Aðeins ein frjósemisstofa hefur verið starfandi á Íslandi síðustu áratugi en með opnun Sunnu frjósemi verða þær tvær.

Skilur að fólk sé hugsi yfir mögulegum skyldleika við sæðisgjöf

Heimspekingur segist skilja vel að fólk hafi orðið hugsi eftir fréttir af því að skyldleiki íslenskra sæðisgjafa og þeirra sem þiggja sæði hérlendis sé ekki skoðaður. Smæð samfélagsins geti kallað á að farið sé lengra en lagarammi og læknisfræðileg rök kveða á um.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×