Fjórði sigur Njarðvíkurstelpna í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. nóvember 2024 20:56 Fyrirliðinn Ena Viso var mjög öflug með Njarðvík í kvöld. Vísir/Diego Njarðvíkurkonur eru komnar á mikla siglingu í Bónus deild kvenna í körfubolta en þær unnu fjórða sigur sinn í röð í kvöld.
Njarðvík vann þá 28 stiga sigur á nýliðum Hamars/Þórs, 98-70. Njarðvíkurliðið var án stiga eftir tvær umferðir en stelpurnar hans Einars Árna Jóhannssonar þéttu raðirnar og eru það lið deildarinnar sem hefur unnið flesta leiki í röð. Njarðvík gaf tóninn strax í byrjun með því að komast í 18-4 í upphafi leiks. Liðið var tíu stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 29-19, og ellefu stigum yfir í hálfleik, 56-45. Njarðvíkurliðið var síðan komið 24 stigum yfir, 79-55, fyrir lokaleikhlutann. Fyrirliðinn Ena Viso var mjög öflug með Njarðvík í kvöld með 19 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar. Hin unga Hulda María Agnarsdóttir átti líka mjög góða innkomu af bekknum, skoraði 10 stig í fyrri hálfleik og endaði með 13 stig. Emilie Sofie Hesseldal var þrennu í leiknum í kvöld, hitti ekki vel en var með 10 stig, 13 fráköst og 11 stoðsendingar. Brittany Dinkins skoraði 18 stig og gaf 8 stoðsendingar. Fleiri ungar stelpur voru líka að gera góða hluti eins og þær og Bo Guttormsdóttir-Frost (16 stig) og Sara Björk Logadóttir (14 stig). Hjá Hamar/Þór var Hana Ivanusa með fimmtán stig, Anna Soffía Lárusdóttir skoraði níu stig og Abby Beeman var með níu stig, tólf stoðsendingar og átta fráköst.
Bónus-deild kvenna UMF Njarðvík Hamar Þór Þorlákshöfn Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Balogun viðurkennir að inngrip Trumps hafi haft truflandi áhrif Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Fleiri fréttir Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Sjá meira