Gummi kíró kom Elísabetu til bjargar Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 21. nóvember 2024 16:00 Jólagleði og notaleg stemning var á viðburði Lindu Ben á dögunum. Það reyndi á þolinmæði og baksturshæfileika Elísabetar Gunnarsdóttur, áhrifavalds og athafnakonu, á hátíðarviðburði Lindu Ben og Örnu mjólkurvara, snemma morguns í vikunni þegar hún fékk það skemmtilega verkefni að baka jólajógúrtköku.
Auk Elísabetar mættu áhrifavaldarnir og matagæðingarnir Guðmundur Birkir Pálmason, jafnan þekktur sem Gummi kíró, Berglind Guðmundsdóttir, Jana Steingrímsdóttir, Ástrós Traustadóttir, Anna Bergmann, Pattra Sriyanonge Andrea Magnúsdóttir og Hekla Nína Hafliðadóttir. Þau fengu það verkefni að baka jógúrtjólaköku. Sunna Ben Samkvæmt heimildum Vísis voru gestir misklárir við hrærivélina, Elísabet Gunnars byrjaði að hræra rjómann í kökuna án þess að festa hræruna á hrærivélina. Gummi kíró var ekki lengi að snúa sér við og koma henni til bjargar, enda lúmskur bakari miðað við það sem hann sýnir á samfélagsmiðlum. Hér má nálgast uppskriftina að jólajógúrtköku Lindu Ben. Þrátt fyrir örlitla byrjunarörðuleika var gleðin við völd líkt og meðfylgjandi myndir gefa til kynna. Sunna Ben Anna Bergmann raðar hér listileg berjum á tertuna sína.Sunna Ben Sunna Ben Sunna Ben Sunna Ben Sunna Ben Sunna Ben Sunna Ben Sunna Ben Sunna Ben Sunna Ben Sunna Ben Sunna Ben
Uppskriftir Kökur og tertur Jól Samkvæmislífið Mest lesið Pallíettur og jólakokteilar í hádeginu hjá flugfreyjum Icelandair Jól Úti er alltaf að snjóa Jól Jólamolar: Eiginmanninum ofbauð þegar hún vildi hafa tvö jólatré Jól Jóladagatal - 20. desember - Jólatré Jól Jólalag dagsins: Laddi með sögulegan flutning á Snjókorn falla Jól Jólaöndin hans Eyþórs Jól Gamla kókauglýsingin kemur með jólastuðið Jól Jólalag dagsins: Sverrir Bergmann flytur Á Þorláksmessu Jól Leit hafin að best skreytta húsinu á Íslandi Jól Vestfirskar hveitikökur og metnaðarfullar skreytingar Jól