Amorim vill ekki að stuðningsmenn United syngi nafnið hans Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. desember 2024 10:03 Rúben Amorim fagnar marki í leik Manchester United og Everton á sunnudaginn. United vann 4-0 sigur. getty/Robbie Jay Barratt Rúben Amorim er þakklátur fyrir móttökurnar sem hann hefur fengið frá stuðningsmönnum Manchester United en er samt ekki hrifinn af nýjum söng þeirra um hann.
United hefur farið vel af stað undir stjórn Amorims og unnið tvo af þremur leikjum undir hans stjórn og gert eitt jafntefli. Stuðningsmenn United eru hrifnir af Amorim og hafa byrjað að syngja nafn hans við lagið „Give It Up“ með KC & The Sunshine Band. Amorim finnst samt frekar óþægilegt að heyra sönginn og vill að stuðningsmenn United hætti að syngja hann. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=DqFhIe9h9J0">watch on YouTube</a> „Ég er ekki hrifinn af söngnum. Ég kann ekki við hann. Mér líður ekki vandræðalega en þar sem ég er stjórinn þurfa þeir að syngja um leikmennina og liðið. Svo þetta er ekki gott fyrir mig,“ sagði Amorim á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Arsenal annað kvöld. „Ég skil og kann virkilega að meta tenginguna við stuðningsmennina en ég vil að þeir styðji við liðið og leikmennina því þeir eru inni á vellinum en ég fyrir utan hann. Ég er samt upp með mér. Ég finn tenginguna við stuðningsmennina en við vitum að við þurfum góð úrslit til að halda henni.“ United er í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með nítján stig eftir þrettán leiki.
Enski boltinn Mest lesið Hvernig kemst Ísland áfram? Handbolti Logi Geirs: „Það er ótrúlegt að liðið sé komið í þessa stöðu“ Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Hér varð hrun Handbolti „Gerðum nákvæmlega það sem við ætluðum ekki að gera“ Handbolti Skýrsla Vals: Svartur Dagur í Zagreb Handbolti Umfjöllun: Króatía - Ísland 32-26 | Hjálp Slóvenar! Við klúðruðum þessu Handbolti Samfélagsmiðlar eftir tapið: „Ömurleg auglýsing fyrir McDonald‘s“ Handbolti Gætið ykkar: Maðurinn sem vildi stýra Íslandi með Snorra Handbolti Klippti hálft landsliðið eftir beiðni Viktors: „Ég fékk svona 70 skilaboð“ Handbolti „Fyrri hálfleikurinn var alveg frábær“ Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu skrýtna sjálfsmarkið og sigurmark Fernandes Kastaði sýru í andlit Wissa og reyndi að stela barninu Óhófleg eyðsla Rauðu djöflanna undanfarin ár að koma í bakið á þeim Haaland fær tíu milljarða hjálp Sér eftir því sem hann sagði Cole Palmer er stolt lítillar þjóðar í Karabíska hafinu Táningur handtekinn vegna ummæla í garð Havertz og eiginkonu hans Tók brjálæðiskast í klefanum hjá Man. Utd Chelsea að gera Naomi Girma að dýrasta leikmanni sögunnar Jón Daði skoraði í fyrsta sigurleik Burton á árinu Grealish eftirsóttur: Færir hann sig um set í Manchester? Meistarar City halda áfram að bæta við sig „Of snemmt að kalla Liverpool besta lið í heimi“ Spilar ekki á meðan glugginn er opinn Petit baðst afsökunar á að „drepa“ Pat Rice „Ég myndi deyja fyrir Liverpool“ Englandsmeistararnir festa kaup á Khusanov Varnarmennirnir björguðu Chelsea Fowler með sína kenningu um þá samningslausu hjá Liverpool Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Áttundi sigur Forest í síðustu níu leikjum Yfirlýsing frá City með stórsigri Onana með skelfileg mistök þegar United tapaði enn og aftur fyrir Brighton Draumaendurkoma hjá Moyes á Goodison Park Fyrrverandi landsliðsmaður Englands mætir KSI í boxbardaga Segir Liverpool besta lið heims Antony á leið til Betis Ollie Watkins gerði Arsenal skráveifu Núnez með tvö mörk í uppbótartíma Kluivert með þrennu í fyrsta leik dagsins Sjá meira