Gríðarleg stemning var í Laugardalshöllinni um helgina þegar strákabandið IceGuys skemmti um 25 þúsund gestum á samtals fimm tónleikum. Þetta er annað árið í röð sem þeir félagar Frikki Dór, Aron Can, Herra Hnetusmjör, Jón Jónsson og Rúrik Gíslason halda jólatónleika sína.
Strákarnir voru ekki einir á sviðinu um helgina, en flottur hópur dansara var ómissandi hluti af þessari listrænu heild sem tónleikarnir voru.
Dætur Jóns og Friðriks Dórs, Mjöll Jónsdóttir 10 ára og Ásthildur Friðriksdóttir 11 ára, voru þar á meðal en báðar æfa þær dans og fimleika af miklu kappi. Þær voru fremstar í flokki í laginu Krumla á þrennum fjölskyldutónleikum sveitarinnar, föstudag og laugardag, og gáfu feðrum sínum ekkert eftir á sviðinu.
Stella Rósenkranz ásamt Mjöll og Ásthildi.
„Okkur datt þetta bara í hug að nýta tækifærið þar sem það er ekki endilega oft sem við getum boðið þeim upp á þetta að stökkva upp á svið á svona viðburði og vildum bara leyfa þeim að koma með okkur,“ segir Friðrik Dór í samtali við Vísi.
„Okkur fannst ótrúlega gaman að fá að deila þessu með þeim.“
Friðrik segir að þetta hafi verið í fyrsta en vonandi ekki síðasta skipti sem dætur þeirra koma fram með þeim bræðrum. „Þær voru þarna fremst á rampinu og frontuðu allt dæmið sem var alveg geggjað. Það var líka gaman að sýna öllum krökkunum að vera með krakka á sviðinu,“ Friðrik.
Spurður hvort þær hafi verið stressaðar áður en þær stigu á svið segir Friðrik að þær hafi verið furðu rólegar. „Þær voru alveg með smá fiðrildi í maganum fyrir fyrsta showið en leystu þetta ótúlega vel,“ segir hann og leynir stoltið sér ekki.
Mjöll og Ásthildur dönsuðu við lagið Krumla á fjölskyldutónleikum IceGuys um helgina.Síminn/Thelma Arngríms
Fagmennska fram í fingurgóma
Friðrik og Jón fara báðir fögrum orðum um Stellu Rósenkranz, leikstjóra, danshöfund og listræns stjórnanda tónleikanna, og segja hana hafa tekið afar vel utan um dætur þeirra. „Hún bæði lét þeim líða vel og trítaði þær eins og krakka, en gaf þeim á sama tíma innsýn inn í alvöru showtime og voru með í eyrunum og eins og við,“ segir Jón.
Friðrik tekur undir orð Jóns og lýsir henni sem mikilli fagmanneskju: „ Hún er þaulvön að vinna með svona ungum dönsurum og var virkilega góð við þær. Á sama tíma kenndi hún þeim á þetta umhverfi af mikilli fagmennsku,“ segir Friðrik.
Alvöru hopp.
Stemningin var engri líkt og meðfylgjandi myndir gefa til kynna.
Glæsilegur danshópur frá Dansstudio World Class.Róbert ArnarIceGuys fengu gesti til að lýsa upp salinn með símum sínum.Róbert ArnarÞessar flottu vinkonur mættu í stil.Ólafur HannessonMóheiður og Stella í góðum félagsskap.Róbert ArnarTónleikagestir sungu með öllum lögunum.Róbert ArnarÞessar skvísur voru fremstar og til í kvöldið.Róbert ArnarPrúðbúnar í pelsum.Róbert ArnarÞað er stór hópur á bakvið svona flotta tónleika.Róbert ArnarÞessar skvísur biður spenntar eftir stjörnum kvöldsins.Ólafur HannessonGlæsilegar vinkonur!Róbert ArnarMóheiður Guðmundsdóttir og Stella Rósenkranz.Róbert ArnarÞessar vinkonur létu sig ekki vanta!Róbert ArnarEva Ruza var manna hressust enda mikill áðdáandi strákasveita.Róbert ArnarÞessi er með klæðaburðinn á hreinu.Róbert ArnarAndrea, Eydís, Rakel og Sigríður.Róbert ArnarFólkið á bakvið barinn.Róbert ArnarEinn mætti í jólapeysu enda um jólatónleika að ræða.Ólafur HannessonSylvia Lovetank búningahönnuður.Róbert ArnarBullandi stemning.Róbert ArnarAlvöru lýsing. Ólafur HannessonAnna Guðný og vinkona mættu hressar.Róbert ArnarRakel, Inga Heiða, Þórunn Elva og vinkona þeirra virtust skemmta sér vel.Ólafur HannessonStemningin var engri lik!Ólafur HannessonSexy Rú tók lagið.Róbert ArnarBrosa! Ólafur HannessonBræðraástin bræddi áhorfendur.Síminn/Thelma ArngrímsAron Can heillaði dömurnar upp úr skónum.Dóra Hrund og vinkona skáluðu fyrir kvöldinu.Síminn/Thelma ArngrímsGunnþórunn þeytti skífum.Síminn/Thelma ArngrímsBörnin voru með stjörnur í augunum og sungu með hverju einasta lagi.Síminn/Thelma ArngrímsÞað var endalaus gleði í loftinu. Síminn/Thelma ArngrímsFriðrik heilsaði upp á aðdáendur.Síminn/Thelma ArngrímsMyndakassinn stóð fyrir sínu.Síminn/Thelma ArngrímsÞetta voru alvöru dansar. Síminn/Thelma ArngrímsIceGuys hatturinn var vinsæll fylgihlutur.Síminn/Thelma ArngrímsSalurinn tryllist þegar drengirnir komu fram í hvítum dressum.Síminn/Thelma ArngrímsMeira! Meira! Meira! Síminn/Thelma ArngrímsPósa. Síminn/Thelma ArngrímsKrakkarnir elska Iceguys. Síminn/Thelma ArngrímsÁhorfendur sungu með af mikilli innlifun.Síminn/Thelma ArngrímsGretta! Síminn/Thelma ArngrímsHalló!Síminn/Thelma ArngrímsGleði! Síminn/Thelma Arngríms