Blóðtaka fyrir Njarðvík Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. desember 2024 13:26 Bo Guttormsdóttir Frost kveður Njarðvík. vísir/jón gautur Njarðvík, topplið Bónus deildar kvenna í körfubolta, hefur orðið fyrir blóðtöku. Næststigahæsti leikmaður liðsins er farin til náms erlendis.
Hin sextán ára Bo Guttormsdóttir Frost kom til Njarðvíkur fyrir tímabilið. Hún hefur spilað tíu af ellefu leikjum liðsins í Bónus deildinni og skorað 11,1 stig og tekið 3,5 fráköst að meðaltali í þeim. Bo, sem á enska móður og íslenskan föður, leikur ekki með Njarðvík eftir áramót því hún heldur til náms í Englandi í janúar. Í viðtali á heimasíðu Njarðvíkur segir Einar Árni Jóhannsson, þjálfari liðsins, óvíst hvort það muni bæta við sig leikmanni til að fylla skarð skarð Bo. „Við vorum ekki að leita þegar Bo hafði samband við okkur í haust. Hún kom með hæð sem okkur vantaði í hópinn en hún kom líka með gæði. Við þurfum bara að sjá hvað verður. Þetta kemur frekar óvænt upp og eins og ég sagði þá vorum við að vonast til að halda henni út tímabilið,“ sagði Einar Árni. „Við erum með fullt af stelpum sem þurfa og geta bætt við sig snúning farandi inn í nýtt ár en svo veit maður aldrei hvort að einhver banki á dyrnar hjá okkur rétt eins og Bo gerði í haust. Það er alveg klárt að við erum ekki að fara að bæta við erlendum leikmanni. Við erum með flottan hóp sem ætlar að standa sig vel í vetur.“ Njarðvík komst á topp Bónus deildarinnar með sigri á Keflavík í gær, 98-88. Þetta var fjórði heimasigur Njarðvíkinga í deildinni í röð. Fyrsti leikur Njarðvíkur á nýju ári er gegn Tindastóli á útivelli 4. janúar.
Bónus-deild kvenna UMF Njarðvík Mest lesið Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Fótbolti „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Sport „Takk fyrir mig Keflavík, þetta var æðisleg sería“ Sport Liðsfélagi Glódísar Perlu ráðin í starf hjá karlaliði Bayern Fótbolti Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM Fótbolti Lyon gerði það sem Liverpool tókst ekki á móti PSG Fótbolti Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Enski boltinn Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí Körfubolti Elísabet stórbætti Íslandsmetið og Júlía hljóp annað met Guðrúnar uppi Sport „Hann var grátandi í hálfleik“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí „Orðnar betri í að standa saman og klára leikinn“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Luke leiddi Lakers til sigurs í fjarveru Luka Hamar/Þór áfram í Bónusdeildinni eftir endurkomusigur Tryggvi góður en liðið tapaði leik sem þurfti að vinnast Kerr íhugar framtíð sína eftir tap í umspilinu Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Sindramenn og Blikar byrja vel Uppgjör: KR-Keflavik 83-91 | Keflavíkurkonur í undanúrslit Luka Doncic vann áfrýjunina og er gjaldgengur fyrir öll verðlaun NBA Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Curry hélt stríðsmönnunum á lífi Völdu kærustu hennar líka númer eitt Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik J. Cole slítur samningi sínum í Kína Olnbogi Ægis brotnaði „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ „Brugðumst vel við í krefjandi aðstæðum“ „Ætluðum okkur lengra en stoltur af liðinu“ „Ótrúlegar 50 mínútur af körfubolta“ Uppgjörið: KR-Stjarnan 115-118 | Stjarnan vann án Ægis og eftir tvær framlengingar Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 84-91 | Grindvíkingar í undanúrslit Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Hamar/Þór einum sigri frá Bónus eftir sigurkörfu á lokasekúndu KR með bakið upp við vegg: „Erum ekki klárir í að fara í sumarfrí“ Uppgjörið:Keflavík-KR 101-65: Keflavíkurkonur tryggðu sér oddaleik „Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“ Sjá meira