Hefði viljað að Rashford hefði talað við sig fyrir viðtalið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. desember 2024 09:00 Ruben Amorim og Marcus Rashford á æfingu Manchester United. getty/Martin Rickett Ruben Amorim, knattspyrnustjóri Manchester United, hefði kosið að Marcus Rashford hefði rætt við sig áður en hann fór í viðtal þar sem hann sagðist vera tilbúinn fyrir nýja áskorun. „
Ég tel sjálfur að ég sé tilbúinn í nýja áskorun og næstu skref,“ sagði Rashford meðal annars í viðtali í fyrradag. Rashford og Alejandro Garnacho voru ekki valdir í leikmannahóp liðsins fyrir stórleikinn við Manchester City á sunnudag. Rashford er heldur ekki í leikmannahópi United fyrir leikinn gegn Tottenham í enska deildabikarnum í kvöld. Á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn Spurs var Amorim spurður út í viðtalið við Rashford. Hann sagðist ekki hafa rætt við leikmanninn eftir að viðtalið kom út en sagði að það væri pláss og þörf fyrir hann hjá United. Amorim hefði þó kosið að Rashford hefði rætt við sig fyrst, áður en hann fór í viðtalið. „Ef þetta væri ég hefði ég sennilega talað við stjórann en einbeitum okkur að Tottenham,“ sagði Amorim. „Það er erfitt fyrir mig að skýra út fyrir ykkur hvað ég ætla að gera. Ég er svolítið tilfinningaríkur svo ég mun ákveða hvað ég geri í augnablikinu.“ United vann endurkomusigur á City á sunnudaginn, 1-2. Liðið sækir Tottenham heim í átta liða úrslitum enska deildabikarsins í kvöld.
Enski boltinn Mest lesið Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Haaland sótti sjötíu hamborgara fyrir HM-farana Fótbolti Finnur Freyr: „Kannski hefur Davíð Tómas eitthvað til síns máls“ Körfubolti „Mamma vill bara að ég sé í ballett“ Sport Þungavigtin: Jói Kalli á Tene níu dögum fyrir bikarúrslitaleik Fótbolti Dagskráin í dag: Hvað töfrar Potter fram með Svíum? Sport Króatar á HM en draumur Færeyja úti Fótbolti Vonast til að Barcelona geti stöðvað sigurgöngu Lyon Fótbolti Holland getur fagnað HM-sæti en Þýskaland þarf stig Fótbolti Þungavigtin: Gummi Tóta kveður New York í úrslitaleiknum Fótbolti Fleiri fréttir Hjammi með mikla reynslu: „Kannski ekkert sérstakt í tuttugu tilraunum“ Stefnir Manchester United vegna „kynferðislegs og líkamlegs ofbeldis“ Fantasýn: Bara nítján stigum frá toppnum á Íslandi Segir Liverpool „fá ekkert“ út úr því að nota Mo Salah svona Fyrrum United-maður sakaður um að hrækja á stuðningsmenn Úlfarnir komnir með nýjan þjálfara „Ráðafólk fótboltans verður að hlusta á áhyggjur kvenna“ Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Aftur brotist inn til Sterling en núna var hann heima „Menn beita öllum brögðum“ Er framherji Brentford óvænt að banka á landsliðsdyrnar hjá Brasilíu? Nagelsmann um Wirtz: Liðsfélagarnir í Liverpool gætu nú aðeins hjálpað honum Kaldasta fagnið í bransanum orðið að vörumerki Liverpool kvartar í dómarasamtökunum „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Mætti sínu gamla liði í fyrsta sinn og skoraði tvö sjálfsmörk Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Sanngjarn heimasigur Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Sjá meira