Átta leikja sigurganga Chelsea í öllum keppnum endaði á Goodison Park í dag og Úlfarnir byrja mjög vel undir stjórn nýja stjórans síns Vitor Pereira. Þrír leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Everton og Chelsea gerðu markalaust jafnteli í Liverpool alveg eins og var niðurstaðan í leik Fulham og Southampton í London. Wolves vann aftur á móti 3-0 útisigur á Leicester.
Chelsea átti möguleika á því að taka toppsætið af Liverpool með sigri en eru eftir þetta jafntefli sitt einu stigi á eftir toppliði deildarinnar. Liverpool á tvo leiki inni á Chelsea og annar þeirra er á móti Tottenham á eftir.
Chelsea hafði unnið fimm síðustu deildarleiki sína og náð með því að minnka forskot Liverpool. Það gæti aukist aftur á eftir.
Chelsea byrjaði leikinn betur og Nicolas Jackson fékk góð færi í fyrri hálfleiknum en Everton óx ásmegin eftir því sem leið á leikinn.
Það var blaut og vindasamt á meðan leiknum stóð og það gerði liðunum lífið leitt í annars frekar bragðdaufum leik.
Wolves byrjar vel undir stjórn Vitor Pereira en liðið skoraði þrjú mörk í fyrri hálfleik í fyrsta leiknum undir hans stjórn. Það varð síðan niðurstaðan í þessum 3-0 útisigri á Leicester.
Goncalo Guedes skoraði fyrsta markið á 19. mínútu, Rodrigo Gomes bætti við öðru marki á 36. mínútu og Matheus Cunha skoraði það þriðja á 44. mínútu eftir stoðsendingu frá Goncalo Guedes.