Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Jakob Bjarnar skrifar 21. desember 2024 09:02 Stefán Einar er hættur að flytja inn kampavín, eins og hann hefur verið þekktur fyrir undanfarin árin. Ekki er óvarlegt að segja hann þekktasta kampavínsmann landsins. vísir/vilhelm Stefán Einar Stefánsson, fjölmiðlamaður og fyrrum kampavínskóngur, er hættur að flytja inn kampavín. Nú nýtur hann þess bara að drekka það og segist sestur í helgan stein. „
Það er hárrétt hjá þér og hefur ekki verið neitt launungarmál. Við höfum ekki verið að básúna um þetta en þannig var að mér var gert tilboð í fyrirtækið í október. Og eftir stuttar, snarpar en sanngjarnar samningaviðræður tókust samningar. Og ég afhenti fyrirtækið í nóvember til nýrra eigenda.“ UPPI bar keypti Kampavínsfjelagið Stefán Einar er líklega einn þekktasti kampavínsmaður landsins. Hann hefur (mis)notað aðstöðu sína á vettvangi fjölmiðla og í hlaðvarpinu Þjóðmál þar sem hann er reglulegur gestur, til að fjalla vítt og breytt um kampavín og kunna margir vel að meta það. „Kampavínið flæðir og Stefán Einar græðir“ var fyrirsögn Viðskiptablaðsins sem sagði af því að fyrirtæki hans Kampavínsfjelagið & co hefði hagnast um sem nam fimm milljónum árið 2021 og aukning hafi orðið um 190 prósent milli ára. Það eru í raun þrjú félög sem kaupa Kampavínsfjelagið sem eru í eigu Styrmis Bjarka Smárasonar, Jóhönnu Húnfjörð (eiginkonu hans) og þá Hrefnu Sætran matreiðslumeistara. „Þau eiga saman Uppibar sem er fyrir ofan Fiskmarkaðinn,“ segir Stefán Einar. En Kampavínsfjelagið hafi unnið mikið með þeim og aðstoðað við að fá inn fín og góð vín. Stefán Einar segir aðdáunarvert hvernig þau hafi tekið þetta starf áfram. Segist sestur í helgan stein „Þetta var beibí sem spratt upp fyrir tilviljun og kaldhæðni örlaganna. Ég stofnaði þetta í september 2020 og það er nú fjögurra ára gamalt.“ Margir vilja meina að þú hafir misnotað aðstöðu þína við að koma kampavíninu rækilega á kortið, en við ættum kannski heldur að tala um að nota? Stefán Einar segir að nú, þegar hann hefur selt félagið, þá sé hann sestur í helgan stein og nú sé tími til kominn að libba og njódda, eins og skáldið sagði.vísir/vilhelm „Þetta er fyrirtæki sem hefur ekki verið að selja á einstaklingsmarkaði,“ segir Stefán Einar og lýsir því að hann hafi átt í gjöfulu samstarfi við helstu vínspekúlanta á bestu veitingastöðum landsins. Þrír veitingastaðir státa af því að hafa fengið hina eftirsóttu Michelin-stjörnu, Moss, Óx og Dill og þau hafa öll átt í samstarfi við Kampavínsfjelag Stefáns Einars. „Þetta sprettur upp af áhuga mínum á þessu fyrirbæri og svo byggist upp portfólíó,“ segir Stefán Einar. Veltan á félagi hans í fyrra, sem er þá síðasta heila árið sem það var rekið í hans eigu, var hundrað milljónir þannig að um er orðið að ræða stöndugt fyrirtæki sem rekið hefur verið úr rassvasa Stefáns, eins og hann orðar það og hlær. En ertu þá hættur í víninu? „Ég er sestur í helgan stein. Nú fer maður að njóta lífsins eftir þessa þrekraun,“ segir Stefán Einar. Liggur ekki í kampavínsmarineringu dagana langa En þetta skýrist meðal annars af því að þau verkefni sem hann hefur verið að sinna fyrir Spursmál, þátt Stefáns Einars á Morgunblaðinu, hafa vaxið mikið af umfangi. „Það hefur verið mikið verk að leiða þann umræðuvettvang. ég var ekkert á þeim buxunum að selja þetta, en þetta tilboð kom og ég stóð frammi fyrir þeirri ákvörðun hvort ég ætlaði að taka þetta áfram eða draga strik í sandinn. Og þetta varð niðurstaðan.“ Stefán Einar á marga góða vini í hópi fremstu víngerðarmanna Evrópu sem hann heimsækir reglulega. Og hann var í Campagne-héraði þegar síðasta uppskera var tekin í hús. Menn margir hafa átt og eiga í brögðóttum viðskiptum við Bakkus og Stefán Einar segir að menn eigi að fara varlega í þessum efnum. „Þetta er fyrirbæri sem maður þarf að umgangast af virðingu. Það er ekki þannig að ég liggi í kampavínsmarineringu alla daga, eins og sumir vilja vera láta. Því fer víðs fjarri – það er sem betur fer ekki þannig.“ Smakkklúbburinn lifir áfram Í tengslum við Kampavínsfjelagið hefur þróast smakkklúbbur sem Stefán Einar stofnaði og verður sá klúbbur, sem telur yfir hundrað manns, áfram starfandi. „Hann fylgdi með í kaupunum. Ég mun halda áfram að halda utan um kynningar en þetta er virkur félagsskapur. Sem hittist reglulega á átta til tíu vikna fresti. Þá er kannski eitt kampavínshús tekið fyrir. Og við blandast hvítt og rautt líka og í samstarfi við mörg af bestu veitingastöðum landsins. Ég fæ að hafa aðkomu að þessu út frá fræðsluvinklinum.“ Stefán Einar hefur á þessum fjórum árum fengist við ýmislegt sem sætir tíðindum. Minnsta flaska sem hann hefur flutt inn er 200 millilítra. Sú stærsta 18 lítra flaska en hún var opnuð á Hvalasafninu. Stefán Einar segir að umfangið á Spursmálum, þættinum sem hann hefur stýrt á Mogganum, hafi vaxið mikið að undanförnu og þetta var orðið spurning um að draga strik í sandinn.vísir/vilhelm Stefán Einar hefur flutt inn 50 ára gömul kampavín, flöskur sem hafa verið framleiddar í hundrað eintökum fyrir allan heiminn. Og hefur verið fara á upp í milljón, eina og hálfa jafnvel. Stefán Einar hefur verið að sækja það sem fremst er gert í þessum heimi.“ Maður á að taka það besta út úr þessu lífi En hvert er dýrasta kampavínið sem þú hefur flutt inn? „Ég myndi halda að það sé Charles Heidsig Collection Crayers, árgangur 1985. Það voru 165 flöskur framleiddar og við fengum eina í kvóta sem ég tók inn.“ Stefán Einar segir að gott kampavín geymist von úr viti, yfir hundrað ár ef því er að skipta. En hvað kostar sú flaska? „Það er trúnaðarmál. Hún kostaði mjög mikið í innkaupum og er á góðum stað í dag. Mér tókst ekki að selja allar flöskurnar sem ég flutti inn. En nú er ég hættur að flytja inn og græða á innflutningi – nú er bara að njóta. Maður á að taka það besta sem býðst út úr þessu lífi.“ En nú þegar þú ert hættur að vera kampavínskóngur, en þú hefur gjarnan verið kallaður fjölmiðlamaður og kampavínskóngur, hvað á ég þá að titla þig? „Blaðasnápur. Fer það okkur ekki best? Þeim finnst sumum gott að nota það.“
Fjölmiðlar Tímamót Áfengi og tóbak Mest lesið Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Lífið Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Lífið Frumsýning á Vísi: „Sýna fólki hver Bubbi er í raun og veru“ Bíó og sjónvarp Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið Lífið Stiklusúpa: Allt það helsta sem kynnt var á Game awards Leikjavísir Fleiri fréttir Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn „Myndi gjarnan vilja að barnið mitt færi líka í heimsókn í mosku“ Einn tenóranna þriggja með tónleika í Hörpu í mars Alltaf til í flipp en nennir ekki að borða vondan mat „Ég nenni ekki að hlusta á 7. október rökstuðninginn enn og aftur“ Einhentar íslenskar vinkonur: „Eins og við hefðum þekkst alla ævi“ Sungu um Labubu og þriðju vaktina um jólin Fagnaði afmælinu með sínum kærustu vinkonum Rúv býður upp á hollenskt fréttastef Gummi Ben mætti með Michelin-kokk Sjá meira