Innlent

Kyrrðar­stund í Ár­bæjar­kirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Tíu ára drengurinn sem lést af slysförum á Ítalíu í dag var nemandi við Árbæjarskóla.
Tíu ára drengurinn sem lést af slysförum á Ítalíu í dag var nemandi við Árbæjarskóla. Árbæjarkirkja

Árbæjarkirkja opnaði dyr sínar fyrir fólki sem vildi tendra ljós fyrir drenginn sem lést af slysförum á Ítalíu í dag. Drengurinn var pólskur en bjó á Íslandi og var nemandi við Árbæjarskóla. Kyrrðar- og bænastund verður haldin í kirkjunni klukkan ellefu á sunnudaginn næstkomandi.

Séra Þór Hauksson sóknarprestur við Árbæjarkirkju segir að kirkjan hafi verið opin milli fimm og átta. Þá hafi fólk getað komið, tendrað á ljósi og rætt við presta og djákna.

„Það komu þarna um 30 manns. Fólk var harmi slegið, það er alveg óhætt að segja það, en þakklátt fyrir að kirkjan skuli hafa opnað,“ segir Þór.

Á sunnudaginn klukkan 11 verður haldin bænastund í kirkjunni, þar sem fólki gefst tækifæri á að tendra ljós til minningar um drenginn og eiga hljóða stund í kirkjunni.

„Við höfum sérstaka stund á sunnudaginn þar sem fólk getur komið, foreldrar með börnunum, tendrað ljós og svona,“ segir Þór Hauksson.


Tengdar fréttir

Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu

Tíu ára pólskur drengur sem býr á Íslandi lést af slysaförum á Ítalíu í gær. Drengurinn var ásamt foreldrum sínum, systur og öðrum fjölskyldumeðlimum í fríi í bænum Nola nærri borginni Napólí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×