Innlent

Hafa enn ekki fundið manninn sem reyndi að stela hrað­banka

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Búið var að birgja fyrir rúðurnar sem maðurinn braut þegar hann bakkaði inn í útibúið.
Búið var að birgja fyrir rúðurnar sem maðurinn braut þegar hann bakkaði inn í útibúið. Vísir/Kristín

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur enn ekki haft hendur í hári manns sem reyndi að hafa hraðbanka með sér á brott úr útibúi Landsbankans í Hafnarfirði aðfaranótt föstudags. Ekki hefur verið lýst eftir manninum. 

Þetta staðfestir vakthafandi varðstjóri í samtali við fréttastofu, og segir málið einfaldlega enn til rannsóknar. 

Maðurinn bakkaði jeppa inn í útibú bankans við Fjarðargötu, með þeim afleiðingum að rúður brotnuðu, festi keðju við bankann og stolinn jeppa sem hann ók. Að svo búnu reyndi hann að aka á brott með hraðbankann í eftirdagi. Það tókst hins vegar ekki og maðurinn ók í flýti í burt þegar ljóst var að honum yrði ekki kápan úr því klæðinu.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er ekki frá neinu nýju að segja í rannsókn málsins. Ekki hefur verið lýst eftir manninum, en athæfi hans náðist skýrt og greinilega á öryggismyndavél. Það kann þó að verða manninum til happs að hann huldi andlit sitt meðan á þjófnaðartilrauninni stóð.

Farið var yfir atburðarásina, sem er vægast sagt reyfarakennd, í kvöldfréttum Stöðvar 2 á föstudag: 


Tengdar fréttir

Lygileg atburðarás í Landsbankanum

Mikið tjón varð á útibúi Landsbankans við Fjarðargötu í Hafnarfirði í nótt þegar maður bakkaði jeppa inn í útibúið og reyndi að hafa hraðbanka á brott með sér. Ætlunarverkið tókst ekki, maðurinn ók snarlega af vettvangi og er enn ófundinn.

Reyndu að ræna hraðbanka

Í Garðabæ eða Hafnarfirði var gerð tilraun í nótt til að ræna hraðbanka. Fram kemur í dagbók lögreglunnar að tilkynnt hefði verið um eignaspjöll á hraðbankanum. Þegar upptökur voru skoðaðar kom svo í ljós að einhver hefði reynt að ræna hraðbankann en án árangurs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×