Birtu óskýra mynd á netinu og leystu eitt elsta mannshvarfsmál Bretlands Eiður Þór Árnason skrifar 2. janúar 2025 12:40 Gamla ljósmyndin sem notuð var til að finna hvar Sheila Fox var í raun niðurkomin. Lögreglan í West Midlands Kona sem hvarf fyrir 52 árum fannst á lífi eftir að lögregla í Englandi birti gamla og óskýra ljósmynd af henni á dögunum. Fékkst þar með botn í eitt elsta opna mannhvarfsmál Bretlands.
Sheila Fox var sextán ára gömul þegar lýst var eftir henni í ensku borginni Coventry árið 1972. Á þeim tíma bjó hún hjá foreldrum sínum og var talið að hún hafi hugsanlega verið í ástarsambandi með karlmanni. Lögreglan taldi því mögulegt að hún hafi flust af svæðinu. Síðasta sunnudag birti lögreglan í West Midlands-sýslu ljósmynd af Sheila á vefsíðu sinni og samfélagsmiðlum sem tekin var um það leyti sem hún hvarf. Fáeinum klukkustundum síðar hafði fólk sett sig í samband til að veita upplýsingar um farir hennar og í gær gaf lögreglan svo út að Sheila Fox, nú 68 ára gömul, væri á lífi og búsett annars staðar á Englandi. Fóru í gegnum öll gömlu gögnin „Við erum ánægð með að geta kynnt niðurstöðu í einni lengstu mannhvarfsrannsókn lögreglunnar í West Midlands,“ sagði í tilkynningu lögreglunnar í kjölfarið en The Guardian greinir frá málinu. Rannsóknarlögreglukonan Jenna Shaw segir að farið hafi verið í gegnum öll gömlu sönnunargögnin til að finna gömlu ljósmyndina. „Við erum lítið teymi og mig langar að viðurkenna vinnu rannsóknarlögreglumannsins Shaun Reeve sem tókst að leysa þetta mál með hjálp almennings. Sérhver týnd manneskja á sína sögu og fjölskyldur þeirra og vinir eiga það skilið að vita hvað varð um þau og vonandi sameinast þeim aftur,“ er haft eftir Jenna Shaw.
Bretland Erlend sakamál England Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira