Innlent

Óttast að Suður­landið verði að „eyðimörk“ í náinni fram­tíð

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Læknarnir Hafsteinn Daníel Þorsteinsson og Oddur Þórir Þórarinsson störfuðu báðir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands um árabil. Hafsteinn hætti sumarið 2023 en Oddur árið áður.
Læknarnir Hafsteinn Daníel Þorsteinsson og Oddur Þórir Þórarinsson störfuðu báðir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands um árabil. Hafsteinn hætti sumarið 2023 en Oddur árið áður.

Læknar sem störfuðu um árabil hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands segja hættuástand ríkja á svæðinu. Suðurlandið gæti endað sem „eyðimörk“ heilbrigðisþjónustu ef ekki verði gripið inn í. Barnabarn manns sem lést í Rangárþingi á aðfangadag segir afa sinn ekki enn hafa verið úrskurðaðan látinn vegna læknaskorts.

Staða heilbrigðismála á landsbyggðinni er víða slæm en hún virðist hvergi verri en á Suðurlandi. Það er í það minnsta álit tveggja lækna sem starfað hafa hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, HSU, en fengu sig fullsadda af skipulagsbreytingum stjórnenda og launastefnu, sem komi niður á grunnþjónustu.

Þú fékkst í rauninni bara nóg? 

„Já, ég er ekki tilbúinn að starfa á lakari taxta heldur en blaðberi hjá Morgunblaðinu eða pítsasendill, sem læknir,“ segir Oddur Þórir Þórarinsson læknir sem starfaði lengi hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, lengst af á Selfossi. 

„Við sem höfum horft upp á þetta höfum í auknum mæli gríðarlegar áhyggjur af þessari þróun, hún hefur verið gríðarlega slæm síðustu ár. Ástandið farið versnandi,“ segir Hafsteinn Daníel Þorsteinsson, lyflæknir og fyrrverandi yfirlæknir hjá HSU.

Brotalamir í öllum kjörnum

Oddur og Hafsteinn gerðu úttekt á stöðunni á Suðurlandi, sem málar upp svarta mynd. Í Vestmannaeyjum hafa bæði læknar og sálfræðingur sagt upp störfum á síðustu misserum, enginn fastur læknir er á sjúkradeild og yfirlæknir hætti árið 2023. Í einmenningshéraðinu Vík er yfirlæknir til áratuga kominn á aldur en starfar sem verktaki þar sem ekki hefur tekist að ráða lækni. 

Á Kirkjubæjarklaustri hefur ekki verið fastur læknir síðustu ár og þar er heldur enginn yfirlæknir. Á Selfossi eru bæði heilsugæsla og bráðamóttaka undirmönnuð. Fjórir yfirlæknar hafa hætt á síðustu tólf mánuðum og enginn yfirlæknir er á bráðamóttöku. Í Rangárþingi er enginn yfirlæknir, enginn fastur verktaki og læknalaust var á svæðinu nú um jólin. 

Grafíska framsetningu á úttektinni, sem er alls ekki tæmandi og nær til fleiri staða á Suðurlandi en hér eru sýndir, má sjá hér fyrir neðan.

Vísir/hjalti

Vanvirðing við aðstandendur

Ólafur Ólafsson fyrrverandi kaupfélagsstjóri lést hundrað ára gamall í faðmi fjölskyldu sinnar hér á Kirkjuhvoli á Hvolsvelli á aðfangadag. Enginn læknir var tiltækur í öllu Rangárþingi og því ekki unnt að úrskurða Ólaf látinn. Í morgun, tíu dögum síðar, var ekki enn búið að því, að sögn Bjarka Oddssonar, barnabarns Ólafs, sem fréttastofa hitti á Hvolsvelli í dag.

„Þetta kom okkur í opna skjöldu. Við höfðum talið okkur trú um það að það væri alltaf læknir á vaktinni, þannig að það var mjög leiðinlegt og napurlegt að þurfa að skilja við lík afa síns inni á herbergi og bara opnir gluggar til að halda hitanum niðri,“ segir Bjarki.

Ólafur Ólafsson, fyrrverandi kaupfélagsstjóri.

Lík Ólafs var loks flutt á útfararstofu, þrátt fyrir að hann hefði ekki verið úrskurðaður látinn. Bjarki segir ljóst að gera þurfi úrbætur.

„Þetta er ákveðin vanvirðing finnst mér við aðstandendur og ekki síður framlag hans til samfélagsins. Við lítum þetta alvarlegum augum. Íbúar eru mjög slegnir yfir þessu,“ segir Bjarki.

Hættulegar aðstæður alltof algengar

Læknarnir taka undir. Bregðast þurfi við strax.

„Fyrir okkur sem starfa á gólfinu, þá finnst okkur með ólíkindum hvað stjórn HSU, og þeim sem ber skylda til að manna vaktir í héraðinu, finnst það léttvægt að enginn læknir sé á vakt,“ segir Oddur.

Myndirðu segja að ástandið væri beinlínis hættulegt? 

„Ég myndi segja að það skapist alltof oft aðstæður sem eru hættulegar, já,“ segir Hafsteinn.

„Það er smám saman verið að þreyta mannskapinn þannig að Suðurlandið gæti allt endað sem eyðimörk í náinni framtíð ef þetta heldur áfram,“ segir Oddur.


Tengdar fréttir

Enginn læknir á vaktinni

Íbúar í Rangárvallasýslu krefjast úrbóta í læknamálum en enginn læknir var á vakt yfir jólin í sýslunni. Skorað er á stjórnvöld að standa við gefin loforð og tryggja eflingu heilsugæslunnar á landsbyggðinni án tafar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×