Viðskipti innlent

Eig­endum fjölgar hjá LOGOS

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kristófer og Maren eru komin í eigendahóp hjá LOGOS.
Kristófer og Maren eru komin í eigendahóp hjá LOGOS.

Um áramótin bættust þau Kristófer Jónasson og Maren Albertsdóttir við eigendahóp lögfræðistofunnar Logos. Þau hafa starfað hjá LOGOS um árabil. LOGOS lögmannsstofa sérhæfir sig í þjónustu við íslenskt og alþjóðlegt viðskiptalíf. Hjá LOGOS starfa um 65 manns.

Í tilkynningu segir að Kristófer Jónasson sé lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Helstu starfssvið Kristófers eru félagaréttur og fyrirtækjaráðgjöf, fjárhagsleg endurskipulagning og gjaldþrota­réttur, verktakaréttur, vinnulöggjöf, sjávarútvegur, samruna og yfirtökur og samningaréttur. Kristófer hefur starfað hjá LOGOS frá árinu 2012.

Maren Albertsdóttir er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Hún er með LL.M. gráðu í alþjóðlegum gerðardómsrétti frá Stokkhólmsháskóla. Hún hefur víðtæka þekkingu á sviði stjórnsýsluréttar og tengdum réttarsviðum þar sem reynir á reglur opinbers réttar. 

Maren starfaði um árabil hjá umboðsmanni Alþingis, meðal annars sem aðstoðarmaður og skrifstofustjóri umboðsmanns þar sem hún hafði yfirumsjón með starfsemi umboðsmanns. Hún var skipuð aðalmaður í kærunefnd jafnréttismála árið 2024 og hefur jafnframt sinnt kennslu í stjórnsýslurétti við laga- og stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Maren starfaði hjá LOGOS á árunum 2008-2012 og síðan frá árinu 2022.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×