Sport

Breska frjáls­í­þrótta­sam­bandið á­kært fyrir mann­dráp

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Abdullah Hayayei var minnst á setningarhátið heimsmeistaramótisins sem hann ætlaði að keppa á.
Abdullah Hayayei var minnst á setningarhátið heimsmeistaramótisins sem hann ætlaði að keppa á. Getty/S Bardens

Breska frjálsíþróttasambandið hefur verið ákært fyrir að bera ábyrgð á dauða Abdullah Hayayei, fyrrum keppanda á Ólympíumóti fatlaðra.

Hayayei var 36 ára gamall þegar hann lést. Málmbúr féll á hann þegar hann var við æfingar á Newham Leisure Centre í London í júlí 2017.

Saksóknari hefur birt ákæruna á hendur frjálsíþróttasambandinu fyrir manndráp af gáleysi og fyrir að stofna öryggi og heilsu í hættu á vinnustað.

Breska ríkisútvarpið segir frá.

Keith Davies, yfirmaður á íþróttamóti fatlaðra árið 2017, hefur einnig fengið á sig álæru fyrir alvarlega vanrækslu og manndráp af gáleysi.

Bæði fulltrúar breska frjálsíþróttasambandsins og hinn 77 ára gamli Davies koma fyrir dóm 31. janúar næstkomandi.

Hayayei var við æfingar fyrir HM fatlaðra í London þegar slysið varð. Hann var frá Sameinuðu arabískum furstadæmunum og ætlaði að keppa á HM í kringlukasti, kúluvarpi og spjótkasti í fötlunarflokki F34.

Hayayei var fimm barna faðir en ári fyrr hafði hann endað í sjötta sæti í spjótkasti og í sjöunda sæti í kúluvarpi á ÓLympíumóti fatlaðra í Ríó 2016.

Hann var einnig að fara að keppa á sínu öðru heimsmeistaramóti eftir að hafa verið með á HM 2015.

Hayayei var minnst með einnar mínútu þögn á setningarhátíð HM fatlaðra í London 2017.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×