Viðskipti innlent

Lík­leg tölvuárás á Toyota

Atli Ísleifsson skrifar
Tekið er við bílum í þjónustu á verkstæðum fyrirtækisins og þjónustuaðila en afgreiðsla gæti tekið lengri tíma tíma en venjulega.
Tekið er við bílum í þjónustu á verkstæðum fyrirtækisins og þjónustuaðila en afgreiðsla gæti tekið lengri tíma tíma en venjulega. Vísir/Vilhelm

Tölvukerfi Toyota á Íslandi liggja niðri en talið er að árás hafi verið gerð á kerfin aðfaranótt mánudags. Unnið er að viðbrögðum í samvinnu við sérfræðinga á þessu sviði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Toyota. Þar segir að tekið sé við bílum í þjónustu á verkstæðum fyrirtækisins og þjónustuaðila en afgreiðsla gæti tekið lengri tíma tíma en venjulega.

Símasamband við skiptiborð liggur niðri en hafa má samband 693 3088 og 693 3080 og á vefspjalli á toyota.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×