Menning

Troð­fullt hús og standandi lófa­klapp

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Margt var um manninn á fyrstu frumsýningu ársins í Tjarnarbíói í gærkvöldi.
Margt var um manninn á fyrstu frumsýningu ársins í Tjarnarbíói í gærkvöldi.

Það var margt um manninn í Tjarnarbíói í gærkvöldi þegar fyrsta leiksýning ársins „Ífigeníu í Ásbrú“ var frumsýnd. Um er að ræða breskt verðlaunaverk eftir Gary Owen sem hefur farið sigurför um heiminn. Áhorfendur virtust mjög hrifnir og hlaut sýningin standandi lófaklapp, að því er fram kemur í tilkynningu.

Leikkonan Þórey Birgisdóttir fer með hlutverk Ífígeníu og Anna María Tómasdóttir leikstýrir.

Verkið fjallar um Ífí, stelpuna sem þú tekur sveig framhjá þegar þú mætir henni hauslausri fyrir hádegi. En það sem þú veist ekki er að þú stendur í ævilangri þakkarskuld við hana. Og nú er komið að skuldadögum. Ífigenía er mætt til Ísland og leigir herbergi á Ásbrú og gerir allt vitlaust á Suðurnesjunum.

Fjöldi þjóðþekktra einstaklinga mættu á sýninguna. Þar má nefna Birgittu Haukdal, Bergþór Pálsson, Albert Eiríksson, Snæbjörn Brynjarsson leikhússtjóri Tjarnabíós, Kristinn Óli Haraldsson, betur sem Króli, Vigdís Hafliðadóttir, Ebba Katrín Finnsdóttir, Oddur Júlíusson, Ellen Margrét Bæhrenz, Arnmundur Ernst og Berglind Festival, svo fáir einir séu nefndir.

Ljósmyndarinn Owen Fiene fangaði nokkur augnablik á filmu og tók myndir af prúðbúnum frumsýningargestum.

Eygló Hilmars, Ebba Katrín og Hákon Jóhannesson í góðum félagsskap. Owen Fiene

Snæbjörn Brynjarsson leikhússtjóri í Tjarnarbíói.Owen Fiene

Albert Eiríksson og Bergþór Pálsson.Owen Fiene

Gleði, gleði, gleði. Owen Fiene

Owen Fiene

Áhorfendur stóðu upp og klöppuðu að sýningu lokinni.Owen Fiene

Þórey fær innilegt faðmlag eftir sýninguna.Owen Fiene

Hjónin Arnmundur Ernst Backman og Ellen Margrét Bæhrenz.Owen Fiene

Fólk var ánægt með sýninguna.Owen Fiene

Owen Fiene

Gígja Hilmarsdóttir í góðum félagsskap.Owen Fiene

Owen Fiene

Listaparið Oddur Júlíusson og Ebba Katrín Finnsdóttir.Owen Fiene

Berglind Pétursdóttir í góðum félagsskap dansara.Owen Fiene

Snæbjörn fagnaði með sínu fólki. Owen Fiene

Arnar Orri Bjarnason og Halla Harðardóttir voru í góðum gír.Owen Fiene

RAgnheiður Maisol og Ragnar Ísleifur Bragason.Owen Fiene

Fjórar fræknu í banagír.Owen Fiene

Berglind Festival alltaf tilbúin að brosa í myndavélina.Owen Fiene

Þórey Birgissdóttir og vinkona.Owen Fiene

Owen Fiene

Vigdís Hafliðadóttir og Króli í góðum félagsskap vina og vandamanna.Owen Fiene

Owen Fiene

Tengdar fréttir

For­réttindi að fá að vera rotta af og til

Þórey Birgisdóttir, leikkona sló nýverið í gegn fyrir frammistöðu sína í leikverkinu Sund sem sýnt er um þessar mundir í Tjarnarbíói. Á sama tíma leikur hún rottuna Pílu í Draumaþjófinum og stendur í framkvæmdum á íbúð sem hún fékk vægast sagt á heilann.  

„Lífið leiðir mann á þann veg sem maður þarf að ganga“

„Maður þarf bara að halda sér á tánum, vinna hart, halda alltaf áfram og reyna að skapa sér tækifæri sjálfur. Ekki sitja bara og bíða eftir símtali,“ segir leikkonan Eygló Hilmarsdóttir en hún fer með hlutverk í sýningunni Sund sem er frumsýnd í Tjarnarbíói í kvöld. Eygló ræddi við blaðamann um marglaga samband sitt við sundið, sjokkið við að útskrifast úr LHÍ og óhefðbundnar leiðir í leiklistinni.

Glæsi­legir gestir á Grímunni

Prúðbúið sviðslistafólk fjölmennti í Borgarleikhúsið í gærkvöldi þar sem Grímuverðlaunahátíðin var haldin í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.