Handbolti

Ljótar senur á HM í hand­bolta í kvöld: Hræktu á Staffan Ols­son

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Staffan Olsson sést hér stýra hollenska landsliðinu á móti Norður-Makedóníu á HM í handbolta í kvöld.
Staffan Olsson sést hér stýra hollenska landsliðinu á móti Norður-Makedóníu á HM í handbolta í kvöld. Getty/Vjeran Zganec Rogulja

Staffan Olsson stýrði hollenska landsliðinu til sigurs á Norður-Makedóníu á HM í handbolta í kvöld en það gekk mikið á í leiknum í Varazdin í Króatíu og það má búast við eftirmálum af honum.

Hollenska liðið vann leikinn 37-32 og hefur unnið tvo fyrstu leiki sína. Liðið er komið áfram en mótherjarnir í Norður Makedóníu eru bara með eitt stig.

Það voru mikil læti og ljótar senur í leikslok. Leikmenn hollenska liðsins flúðu inn í klefa í stað þess að stilla sér upp á miðjum vellinum.

Það sást líka að Staffan Olsson, þjálfari Hollendinga, var mjög ósáttur í leikslok.

Fjölmiðlafulltrúi Hollendinga sagði frá því að stuðningsmenn Norður-Makedóníu hefði hrækt á Olsson og kastað hlutum í hann.

„Við áttum engra annarra kosta völ en að fara inn í klefa,“ sagði aðstoðarþjálfarinn Wai Wong við NOS. Liðin stilla sér upp eftir leik og besti maður leiksins er tilkynntur. Það varð ekkert slíkt á dagskrá í kvöld og skiljanlega.

„Svona á ekki heima í handboltahöll,“ hélt Wong áfram og Hollendingar ætla að senda inn kvörtun til Alþjóðahandboltasambandsins. Blóðheitir stuðningsmenn Norður-Makedóníu urðu sér og þjóð sinni til skammar.

Heimsmeistaramótið fer fram í Noregi, Danmörku og Króatíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×