Sport

Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Nantz hélt strax um höndina og slasaði sig við að reyna að ná boltanum af varnarbuffinu Watt.
Nantz hélt strax um höndina og slasaði sig við að reyna að ná boltanum af varnarbuffinu Watt. Skjáskot/CBS

NFL-lýsandinn Jim Nantz fékk að kynnast því í gærkvöld að það er ekkert grín að kýla bolta úr höndum NFL-leikmanns. Hann þurfti meðhöndlun á hönd eftir að hafa reynt að koma boltanum úr höndum fyrrverandi leikmannsins JJ Watt, sem lýsti leik með Nantz í gær.

Nantz og Watt lýstu leik Buffalo Bills við Las Vegas Raiders í gær. Þeir félagar brugðu á leik er Watt, sem var þrisvar valinn varnarmaður ársins í deildinni, sýndi Nantz hvernig leikmenn halda á boltanum til að koma í veg fyrir að þeir missi hann.

Varnarbuffið Watt skoraði þá á Nantz að reyna að slá boltann úr höndunum á sér. Nantz virtist óviss um að taka þessari áskorun en lét svo vaða. Boltinn haggaðist ekki í sterklegum höndum hins 37 ára gamla Watt sem er 196 cm og 130 kíló.

67 ára gamall Nantz hélt hins vegar strax um höndina og sjá mátti á svipnum á honum að hann hafði meitt sig umtalsvert við tilraunina.

„Höndin er brotin,“ sagði Nantz sem var svo kominn með ís á höndina og vafning um hana skömmu síðar.

Í þann mund sem síðari hálfleikur leiksins hófst eftir slys lýsendanna í fyrri hálfleiknum hafði Nantz þó húmor fyrir atvikinu.

„Það var tekist hart á á köflum í fyrri hálfleik,“ sagði Nantz á meðan upphafsspyrna seinni hálfleiks var tekin. „Einhverjir munu þurfa að spila meiddir síðustu tvo leikhlutana.“

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×