Handbolti

Skýrsla Henrys: Kúbverjarnir reyktir í Zagreb

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það var létt yfir strákunum eftir leik.
Það var létt yfir strákunum eftir leik. vísir/vilhelm

Ísland er komið þægilega inn í milliriðla HM í handbolta eftir stórsigur, 40-19, á arfaslöku liði Kúbverja. Nú er þessum bullleikjum lokið og alvaran bíður handan við hornið.

Góðu tíðindin fyrir leik voru þau að landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson var mættur aftur í liðið. Fyrr en áður hafði verið búist við.

Fyrirliðinn stökk beint í byrjunarliðið. Setti upp sýningu í korter, hneigði sig og yfirgaf sviðið.

Hann kom inn í liðið á kostnað Hauks Þrastarsonar. Margir horfðu til þess að Haukur kæmi sterkur inn í liðið á þessu móti og myndi jafnvel fá þennan leik til þess að skjóta sig í gang. Svo fór ekki og þjálfarinn virðist hafa meiri trú á öðrum leikmönnum sem vissulega eru allir gæðamiklir. Verður áhugavert að sjá hvort Haukur komi aftur inn í hópinn á mótinu.

Ef við rýnum í þennan fáranlega handboltaleik að þá voru vissulega framfarir. Liðið hélt haus allan leikinn og gerði það sem það átti að gera - rústa þessu hörmulega kúbverska liði.

Það komu allir með sitt að borðinu og þetta var virkilega fagmannlega gert hjá strákunum okkar.

Viktor Gísli lítur vel út í markinu og virkar í frábæru standi. Gamli maðurinn á bekknum hefur líka heilmikið fram að færa.

Það var sömuleiðis gott að sjá að Aron virðist vera laus við meiðslin en ekki var annað að sjá en að hann hefði beitt sér af fullum krafti og væri heill heilsu.

Það lá alltaf fyrir að þessir tveir fyrstu leikir væru algjör skylduverkefni. Heilt yfir segja þeir okkur ekkert sérstaklega mikið en það sem við sjáum lofar þó góðu.

Nú byrjar fjörið. Fram undan er leikur við Slóvena sem er ekki bara lokaleikur riðilsins því hann er í raun líka fyrsti leikur milliriðils þar sem sigurvegari leiksins fær mikilvæg stig með sér inn í milliriðilinn.

Í þeim slag duga engin vettlingatök og í þeim leik fáum við raunverulega einhver svör við þvi hvar okkar lið er statt. Nú má loksins byrja að poppa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×