Landslið karla í handbolta

Fréttamynd

„Ísak getur verið okkar fram­tíðar mark­vörður“

Snorri Steinn Guðjónsson gerir fáar breytingar á íslenska karlalandsliðinu fyrir vináttulandsleikina gegn Svíþjóð síðar í þessum mánuði. Hann segir tvo af þeim leikmönnum sem koma inn í íslenska hópinn, Ísak Steinsson og Reyni Þór Stefánsson, hafa spilað vel eftir áramót.

Handbolti
Fréttamynd

Svona var fyrsti fundur Snorra eftir EM

Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi HSÍ þar sem landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson og landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson fóru yfir ýmis mál. Fram undan eru leikir við Svía í hefndarhug.

Handbolti
Fréttamynd

Landsleikirnir við Svía ekki í Laugar­dals­höll

HSÍ hefur greint frá því að komandi æfingaleikir karlalandsliðsins í handbolta við Svíþjóð fari fram á Hlíðarenda annars vegar og í Kaplakrika hins vegar. Það er því endanlega staðfest að þeir fari ekki fram í Laugardalshöll.

Handbolti
Fréttamynd

„Leiðin­leg tíma­setning á þessum meiðslum“

Þorsteinn Leó Gunnarsson er kominn aftur á gott skrið eftir meiðsli sem héldu honum frá keppni á EM með íslenska landsliðinu. Hann hefði viljað spila meira á því móti en eftir á að hyggja segir hann landsliðsþjálfarann hafa tekið rétta ákvörðun.

Handbolti
Fréttamynd

Skellur fyrir banka­bók HSÍ

Snorri Steinn Guðjónsson segir miður að íslenska karlalandsliðið geti ekki spilað komandi leiki við Svíþjóð í þjóðarhöllinni. Enn hefur ekki verið staðfest hvar leikirnir fari fram.

Handbolti
Fréttamynd

„Ég ætla ekki að bera á­byrgð á því“

Miðamál voru mikið til umræðu á meðan Evrópumóti karla í handbolta stóð yfir, þá sérlega í kringum úrslitahelgina í Danmörku. Landsliðsþjálfari Íslands gerði mótið upp á dögunum og segir betur mega fara, næst þegar Ísland kemst svo langt. Hann þorir þó ekki að ábyrgjast miðakaup á undanúrslit næsta árs.

Handbolti
Fréttamynd

„Auð­mjúkur, þakk­látur og stoltur“

Snorri Steinn Guðjónsson lætur umboðsmann sinn alfarið sjá um samningaviðræður við HSÍ um framhald hans sem landsliðsþjálfari í handbolta. Samningurinn rennur út í ár en Snorri vill taka næstu skref með landsliðinu.

Handbolti
Fréttamynd

„Gagn­rýnin og við­bjóðurinn aldrei verið meiri“

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson var hársbreidd frá því að verða fyrsti íslenski handboltamaðurinn til að vinna þrenn verðlaun á stórmótum. Björgvin Páll og félagar í íslenska karlalandsliðinu urðu að sætta sig við fjórða sætið á Evrópumótinu en hann hafði áður unnið silfur á Ólympíuleikunum í Peking 2008 og brons á Evrópumótinu í Austurríki 2010.

Handbolti
Fréttamynd

„Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“

Jón Halldórsson formaður HSÍ segir það koma í ljós á næstu tveimur vikum hvort stuðningsmenn íslenska landsliðsins geti gengið að fleiri en hundrað miðum vísum á úrslitahelgi næsta stórmóts, HM í Þýskalandi. Þá kemur líka í ljós hvar riðlakeppnin verður spiluð.

Handbolti
Fréttamynd

Erum við ó­sann­gjörn við Ómar Inga sem þjóð?

Einar Jónsson og Rúnar Kárason mættu til Stefáns Árna Pálssonar og gerðu upp Evrópumótið í Besta sætinu þar sem íslenska landliðið náði fjórða sæti og spilaði í fyrsta sinn um verðlaun í sextán ár. Sérfræðingarnir ræddu sérstaklega frammistöðu fyrirliðans Ómars Inga Magnússonar.

Handbolti
Fréttamynd

Metáhorf á Ís­landi og þriðjungur Dana sá sigurinn

Áhugi Íslendinga á nýafstöðnu Evrópumóti í handbolta var gífurlegur og það sýna meðal annars áhorfstölur. Aldrei hafa fleiri horft á íþróttaviðburð hér á landi en þegar Ísland mætti Danmörku í undanúrslitum síðasta föstudag.

Handbolti
Fréttamynd

„Al­gjör þvæla að fara að rugga því eitt­hvað“

Fyrrum landsliðsmaður í handbolta telur að íslenska landsliðið geti farið alla leið á næstu árum. Þá þarf allt að ganga upp en efniviðurinn er nægilega góður. Ísland hafnaði í fjórða sætinu á Evrópumótinu. Liðið hefur ekki komist í undanúrslit á stórmóti frá árinu 2010 og því skráðu drengirnir nöfn sín í sögubækurnar á síðustu tveimur vikum. Leikmenn liðsins eru flestallir á frábærum aldri og því ætti framtíðin að vera björt.

Handbolti