Innlent

Slökkvi­liðs- og sjúkra­flutninga­menn bjart­sýnir eftir fund dagsins

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Formaður LSS segist bjartsýnn að samningar náist áður en félagið þurfi að grípa til verkfallsaðgerða.
Formaður LSS segist bjartsýnn að samningar náist áður en félagið þurfi að grípa til verkfallsaðgerða. Vísir/Vilhelm

Formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna segist bjartsýnn eftir samningufund í kjaradeilu. 88 prósent félagsmanna samþykktu verkfallsaðgerðir og eiga þær að hefjast 10. febrúar.

„Það gekk ágætlega, komin einhver skriða á þetta og við erum búin að sammælast um hvaða leiðir við ætlum að fara til að klára þetta,“ segir Bjarni Ingimundarson, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Fundað var í dag, í fyrsta skipti síðan um miðjan desember, og er sá næsti á þriðjudag. 

Ef samningar nást ekki hefst verkfall 10. febrúar. 

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn eru skyldugir til að sinna neyðartilvikum á meðan verkfall stendur yfir en önnur verkefni verða látin sitja á hakanum. Yfirvinnubann er á meðal áætlaðra verkfallsaðgerða og ætla aðalstarfsmenn að skila inn boðtækjunum sínum. Boðtæki eru notuð til að kalla út auka mannskap sem er ekki á vakt í stærri verkefni.

Samkvæmt verkfallsáætlun stendur það yfir frá klukkan átta til fjögur þann 10. febrúar. Vikuna þar á eftir eru tveir verkfallsdagar, 17. og 21. febrúar. Í þriðju viku verkfallsins eru þrír verkfallsdagar, 24., 26, og 28. febrúar. Mánudaginn 3. mars hefst allsherjarverkfall ef samningar nást ekki fyrir þann dag.


Tengdar fréttir

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn á leið í verkfall

Félagsmenn í Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna samþykktu boðun verkfalls með yfirgnæfandi meihluta í atkvæðagreiðslu sem lauk í dag. 88 prósent þeirra samþykktu aðgerðirnar vegna pattstöðu í kjaraviðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×