Handbolti

Mikil­vægir McDonalds borgarar eftir leik: „Biðin hverrar mínútu virði“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Janus Daði gæddi sér, líkt og hinir strákarnir á Big Mac og þremur til fjórum ostborgurum.
Janus Daði gæddi sér, líkt og hinir strákarnir á Big Mac og þremur til fjórum ostborgurum. Vísir/Vilhelm/McDonalds

Landsliðsmenn Íslands voru verðlaunaðir eftir sigur gærkvöldsins með McDonald's hamborgurum. Þeir nutu þess vel að breyta til frá bragðlitlum kjúklingi á hótelinu.

Vísir ræddi við þá Janus Daða Smárason og Elliða Snæ Viðarsson í dag sem höfðu báðir orð á því að tilbreytingin hafi verið kærkomin.

„Maturinn er bara eins og á öllum stórmótum. Það er bara þurr kjúli og pasta sem maður er svo sem orðinn vanur. Við fengum að að gæða okkur á McDonald‘s eftir leik í gær. Það var fín tilbreyting,“ segir Elliði.

„Það var frábært. Við reyndar þurftum að bíða svolítið lengi eftir honum. En það var hverrar mínútu virði,“ segir Janus. Strákarnir hafi getað gætt sér á nokkrum borgurum.

„Það var ekkert verið að flækja þetta. Þetta var Big Mac á alla og þrír, fjórir ostborgarar með. Þá bara sváfum við þokkalega.“

Strákarnir æfa svo í Zagreb síðar í dag og undirbúa sig fyrir strembið verkefni á morgun gegn heimamönnum í króatíska landsliðinu, sem leika undir stjórn fyrrum landsliðsfyrirliða Íslands, Dags Sigurðssonar.

Vísir mun fylgja strákunum áfram vel eftir fram að leik sem fer fram klukkan 19:30 annað kvöld.


Tengdar fréttir

Hrósuðu Viggó í hástert: „Hann er svo verðmætur“

Þeir Einar Jónsson og Bjarni Fritzson ræddu mikilvægi Viggós Kristjánssonar fyrir íslenska handboltalandsliðið í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar. Þeir segja að hann sé góður á báðum endum vallarins og passi vel inn í leikstíl íslenska liðsins.

Svona fögnuðu Strákarnir okkar inni í klefa

Ísland sigraði Egyptaland, 24-27, í fyrsta leik sínum í milliriðli 4 á heimsmeistaramótinu í handbolta í gær. Íslendingar eru með sex stig í milliriðlinum og í góðri stöðu til að komast í átta liða úrslit.

„Aron er betri handboltamaður en Óli Stef“

Landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson hefur átt magnað heimsmeistaramót og sýndi enn á ný mikilvægi sitt í frábærum sigri á sterku liði Egypta í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×