Enski boltinn

Komust yfir fjölda símanúmera leik­manna í ensku deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ekki er vitað hvaða símanúmer láku út eða hvernig það gerðist. Við vitum því ekki hvort þessir aðilar séu með númerið hjá Liverpool mönnunum Cody Gakpo eða Trent Alexander-Arnold.
Ekki er vitað hvaða símanúmer láku út eða hvernig það gerðist. Við vitum því ekki hvort þessir aðilar séu með númerið hjá Liverpool mönnunum Cody Gakpo eða Trent Alexander-Arnold. Getty/Gareth Copley

Breska lögreglan hefur hafið rannsókn á því hvernig óprúttnir aðilar komust yfir fjölda símanúmera hjá leikmönnum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Símanúmerin eru síðan notuðu til að reyna að svíkja pening af leikmönnunum.

Lekinn miklu er til umfjöllunar í enska blaðinu Daily Mail.

Samkvæmt fréttinni eru félög í tveimur efstu ensku deildunum að vinna saman að því að stöðva stórfelldu fjársvikin. Sérfræðingar í slíkum málum hafa einnig reynt að aðstoða þau í því.

Leikmenn hafa verið varaðir við svikunum og þeim er ráðlagt að svara ekki símtölum úr óþekktum númerum. Þeir hafa líka reynt að lauma sér inn í spjallhópa leikmanna með því að þykjast vera stjarna sem hafi fengið sér nýtt símanúmer.

Þegar hefur verið reynt að svíkja pening út úr einhverjum leikmönnum en þeir fóru að lenda í slíku í byrjun þessa tímabils. Svikahrapparnir hafa einnig reynt að komast yfir persónulegar upplýsingar leikmanna.

Enginn hefur aftur á móti komist að því hvernig svikahrapparnir komust yfir öll þessi símanúmer.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×