Körfubolti

Kefla­vík stakk af á Króknum og heldur sig við toppinn

Sindri Sverrisson skrifar
Anna Ingunn Svansdóttir skoraði níu stig í kvöld fyrir Keflavík.
Anna Ingunn Svansdóttir skoraði níu stig í kvöld fyrir Keflavík. vísir/Diego

Eftir jafnan fyrri hálfleik vann Keflavík stórsigur gegn Tindastóli á Sauðárkróki í kvöld, 97-69, í Bónus-deild kvenna í körfubolta.

Þetta var þriðji sigur Keflavíkur í röð og liðið er nú tveimur stigum á eftir toppliði Hauka sem á hins vegar leik til góða við Grindavík á morgun, í þessari þriðju síðustu umferð deildarinnar. Keflavík og Haukar mætast svo í næstu umferð.

Staðan var 43-40 fyrir Keflavík í hálfleik í kvöld en liðið vann þriðja leikhluta með miklum mun, 29-15, og hélt svo áfram að bæta við forskotið í síðasta leikhlutanum.

Jasmine Dickey var stigahæst hjá Keflavík með 25 stig og hún tók líka 17 fráköst. Alls voru sex leikmenn liðsins með tíu stig eða meira en Thelma Dís Ágústsdóttir var næststigahæst með 13 stig og hún átti átta stoðsendingar.

Hjá Tindastóli var Oumoul Coulibaly stigahæst með 20 stig og Edyta Falenzcyk skoraði 13, en Brynja Líf Júlíusdóttir skoraði tvö stig og tók tíu fráköst.

Tindastóll er áfram með 16 stig í 5. sæti deildarinnar og kemur til með að hefja úrslitakeppnina á útivelli.


Tengdar fréttir

Valur ofar eftir æsispennu

Valskonur höfðu betur gegn Stjörnunni í æsispennandi leik í Bónus-deild kvenna í körfubolta, 85-84, og eru því með tveimur stigum meira í 6. sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×