Sport

Lengja bann í tólf ár: Sendi skákkonu notaðan smokk í pósti

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anna Cramling er meðal þeirra sem Andrejs Strebkovs, til vinstri, áreitti þegar hún var enn bara táningur.
Anna Cramling er meðal þeirra sem Andrejs Strebkovs, til vinstri, áreitti þegar hún var enn bara táningur. Getty/Miguel Pereira/

Andrejs Strebkovs áreitti sænsku skákkonuna Önnu Cramling en hún var ekki sú eina. Nú hefur lettneski skákmeistarinn verið dæmdur í tólf ára bann af Alþjóða skáksambandinu fyrir framkomu sína við skákkonur.

„Þessi ákvörðun okkar sendir sterk skilaboð,“ sagði Arkadij Dvorkovich, forseti Alþjóða skáksambandsins.

Hinn 43 ára gamli Andrejs Strebkovs hafði áður verið dæmdur í fimm ára bann síðasta haust en FIDA ákvað að lengja bannið um sjö ár. Aftonbladet segir frá.

@Sportbladet

Í yfir tíu ár þá áreitti hann skákkonur en margar þeirra voru undir lögaldri. Hann gerði það margvíslegum hætti.

Hin 22 ára sænska skákstjarna Anna Cramling hefur komið fram og staðfest að hún sé ein af fórnarlömbum Strebkovs. Cramling sagði að Strebkovs hafi sent sér notaðan smokk í pósti þegar hún var sautján eða átján ára gömul.

Sambandið segir að lenging bannsins sé vegna þess að hinn seki hefur ekki sýnt neina iðrun eða samúð með fórnarlömbum sínum. Hegðun hans er einnig talin hafa skaðað íþróttina verulega. Ákvörðunin kemur einnig í framhaldið á niðurstöðum úr DNA prófi.

„Þetta eru skýr skilaboð um að það sé ekkert pláss fyrir svona ótæka hegðun í skákinni. FIDE er staðráðið í að verja réttindi og virðingu allra sem tefla. Ekki síst konur og börn sem eiga finna til öryggiskenndar og fá virðingu í okkar samfélagi,“ sagði Dvorkovich í yfirlýsingunni.

Alþjóða skáksambandið tók líka skákmeistaratitilinn af Strebkovs sem hann hefur notað til að fá vinnu við skákkennslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×