Enski boltinn

Amorim og Rashford talast ekki við

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alls eru 49 dagar síðan Marcus Rashford spilaði síðast fyrir Manchester United.
Alls eru 49 dagar síðan Marcus Rashford spilaði síðast fyrir Manchester United. getty/Catherine Ivill

Ruben Amorim, knattspyrnustjóri Manchester United, og Marcus Rashford, leikmaður liðsins, talast ekki lengur við.

Rashford hefur ekki spilað fyrir United síðan 12. desember og eftir leikinn gegn Fulham á sunnudaginn sagði Amorim að hann myndi frekar velja 63 ára markvarðaþjálfara United í hóp liðsins en Rashford. Hann sagði að hann legði sig ekki nógu mikið fram á æfingum.

The Guardian greinir frá því að Amorim tali ekki lengur við Rashford nema þegar hann ávarpar allan leikmannahóp liðsins.

Rashford hefur sagst vera spenntur fyrir nýrri áskorun á ferlinum en enn hefur ekkert þokast í hans málum. Félagaskiptaglugganum verður lokað á mánudaginn.

Rashford hefur verið hjá United síðan hann var sjö ára og leikið yfir fjögur hundruð leiki fyrir liðið.

United mætir FCSB frá Rúmeníu í lokaleik sínum í riðlakeppni Evrópudeildarinnar annað kvöld. Rauðu djöflarnir eru í 4. sæti Evrópudeildarinnar.


Tengdar fréttir

Segir enga leið til baka fyrir Rashford hjá United

Rio Ferdinand, fyrrverandi leikmaður Manchester United, segir Marcus Rashford muni líklega ekki spila aftur fyrir liðið eftir nýjustu ummæli knattspyrnustjórans Rubens Amorim um framherjann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×