Í tilkynningu á vef stofnunarinnar segir að meira magn af loðnu hafi mælst fyrir norðvestan land nú í febrúar en í janúarmælingum Hafrannsóknastofnunar. Það sé meginástæðan fyrir uppfærðri ráðgjöf upp á 8589 tonn.
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson, ásamt uppsjávarveiðiskipunum Polar Ammassak og Heimaey hafi verið við loðnumælingar norður af Íslandi síðan 8. febrúar. Ekkert hafi verið að sjá af fullorðinni loðnu á yfirferðasvæði veiðiskipanna tveggja á meðan tæp 98.2 þúsund tonn hafi mælst á Árna Friðrikssyni norðvestan við land.
Í janúar hafi mælst um 180 þúsund tonn austur af landinu og saman með febrúarmælingunni vestan til sé heildarmæling vetrarins um 278.20 þúsund tonn.
Til samanburðar hafi stærð veiðistofnsins verið metinn 318 þúsund tonn síðastliðið haust. Ráðgjöf hafrannsóknastofnunar byggi á samþykktri aflareglu stjórnvalda þar sem haustmæling vegi 1/3 á móti 2/3 af niðurstöðu vetrarmælinga að teknu tilliti til óvissu í matinu og til metins afráns.