Engin bráð hætta á „bíólausu Íslandi“ Jón Þór Stefánsson skrifar 1. mars 2025 15:02 Til stendur að halda Sambíóunum í Álfabakka. Vísir/Vilhelm Alfreð Ásberg Árnason, framkvæmdastjóri Sambíóanna, segir íslenskan bíómarkað standa frammi fyrir áskorunum, líkt og hækkandi rekstrarkostnaði og breyttu neyslumynstri. Þrátt fyrir það sé ekki hætta á að Ísland verði bíólaust. „
Það er óumdeilt að streymisveitur og ólöglegt niðurhal hafa haft áhrif á rekstrarumhverfi bíóhúsa. Hins vegar sjáum við einnig sterkar vísbendingar um að fólk hafi enn mikinn áhuga á bíóupplifuninni,“ segir Alfreð. Hann nefnir að aukin aðsókn sé á ákveðnar kvikmyndir, líkt og sérstaklega stórar verðlaunamyndir. Þá hafi sýningar á klassískum myndum og aðrir sérviðburðir einnig verið að njóta vaxandi vinsælda. Þá segir hann streymisveitur jafnframt hafa jákvæða hluti í för með sér. Þær hafi kennt fleirum að horfa á myndir frá öðrum löndum, og þá nefnir hann sérstaklega spænskumælandi kvikmyndir. „Hvað varðar framtíð kvikmyndahúsa á Íslandi, þá teljum við enga bráða hættu á „bíólausu Íslandi“. Hins vegar eru áskoranir til staðar, svo sem hækkandi rekstrarkostnaður og breytt neyslumynstur,“ segir Alfreð. „Bíómarkaðurinn hefur verið stöðugur undanfarin tvö ár með um eina milljón gesta á ári. Fyrir 2020 var heildarfjöldi gesta á bilinu 1,2 til 1,4 milljónir, en eins og margir þekkja hefur verið krefjandi að vinna sig út úr þeim áskorunum sem heimsfaraldurinn skapaði,“ segir Alfreð sem bætir við að hann hafi trú á því að aðsóknin verði betri á komandi árum. Standi til að halda áfram í Álfabakka Á dögunum var greint frá því að bíóhúsið í Álfabakka, þar sem Sambíóin hafa verið til húsa um áratugaskeið, hafi verið selt. „Álfabakki var í eigu föður míns, Árna Samúelssonar, sem seldi fasteignina. Það stendur þó til að reka kvikmyndahús áfram í Álfabakka. Orðrómur hefur verið um aðra starfsemi í húsinu, en það varðar kjallarann, þar sem áður var skemmtistaðurinn Broadway sem Ólafur Laufdal átti. Það stendur til að koma með nýja starfsemi í þann hluta hússins,“ segir Alfreð. Sambíóin Álfabakka opnuðu þann 2. mars 1982.Vísir/Vilhelm Í umfjöllun Morgunblaðsins um söluna var haft eftir Þórarni Arnari Sævarssyni, einn kaupandanna, að það væri „athyglisverð hugmynd“ að opna keilusal í húsinu. Alfreð bendir á að þegar bíóið hóf göngu sína í Álfabakka í mars 1982, hafi því verið velt upp hvort tímabært væri að opna nýtt kvikmyndahús á tímum þegar VHS-myndbandstæki væru að ryðja sér til rúms. „Þessi umræða hefur fylgt bíórekstri allar götur síðan, en kvikmyndahúsin hafa staðið af sér ýmsar breytingar í tækni og neysluhegðun.“ Óskarinn auki aðsókn Óskarsverðlaunin fara fram vestanhafs um helgina og sýna Sambíóin nú sex myndir sem tilnefndar eru sem besta mynd, en þær eru The Brutalist, Anora, The Substance, A Complete Unkown, og Conclave. Alfreð segir að þau hjá Sambíóunum finni fyrir auknum áhuga í kringum Óskarsverðlaunin. „Á hverju ári sjáum við að tilnefningar og verðlaun geta haft töluverð áhrif á aðsókn, sérstaklega þegar um sterkar myndir er að ræða. Það er skemmtilegt að sjá hvernig verðlaunahátíðir eins og Óskarsverðlaunin vekja áhuga fólks á kvikmyndum.“ Klassík og listamyndir fá aukna aðsókn Undanfarið hafa Sambíóin verið duglegri að sýna klassískar sem og listrænar kvikmyndir. Alfreð segir að aðsókn í þær hafa aukist. „Þetta var drifkrafturinn á bak við þá stefnu að bæta slíkum myndum við dagskrána okkar. Þótt aðsókn í þessar myndir sé ekki jafnmikil og í vinsælustu Hollywood-myndunum, hefur hún vaxið stöðugt og við höfum fengið afar jákvæð viðbrögð við þessari þróun,“ segir Alfreð. „Fyrir tilkomu myndbandaleiga var algengt að sýna eldri kvikmyndir reglulega í bíóhúsum, og það var mikil hefð fyrir því á árum áður. Við höfum ákveðið að endurvekja þessa hefð með sérstökum sýningum á klassískum myndum, sem hefur mælst vel fyrir hjá kvikmyndaáhugafólki.“ Til stendur að sýna nokkrar kvikmyndir eftir David Lynch, sem féll frá á dögunum, í mars. Þá sé á dagskrá að sýna The French Connection í ágúst til heiðurs Gene Hackman, en greint var frá andláti hans í gær. „Við munum án efa sýna fleiri myndir með Gene Hackman á næstunni. Hann var frábær leikari. Blessuð sé minning hans.“ Að sögn Alfreðs voru tóku eldri myndir um fjögur prósent af heildarmarkaðnum á síðasta ári, en listrænar kvikmyndir um sex prósent. Þá hafi íslenskar kvikmyndir tekið sextán prósent af heildaraðsókninni í Sambíóunum Kringlunni. Þá minnist Alfreð á fjölskyldumyndir með pólsku tali hafi verið að vekja lukku. Þúsund til tvö þúsund manns hafi verð að mæta á þannig sýningar. „Það er þó hægt að gera enn betur fyrir pólska samfélagið og fleiri hópa með fjölbreyttara framboði mynda á þeirra tungumáli.“
Kvikmyndahús Bíó og sjónvarp Mest lesið „Ég hef þó aldrei kunnað vel við titilinn framkvæmdastjóri“ Atvinnulíf 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Viðskipti innlent Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Atvinnulíf Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Viðskipti innlent Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Viðskipti innlent Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Viðskipti innlent Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ Atvinnulíf Miðeind festir kaup á Snöru Viðskipti innlent Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Samstarf Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Miðeind festir kaup á Snöru Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Reon ræður inn hönnunarstjóra frá Spotify Kjarasamningar Play og ÍFF í höfn Greiddu 865 milljónir fyrir Herkastalann Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Hrefna stýrir Attentus SFF hafna ásökunum bifreiðaeigenda „Klárlega“ breytingar í ytra umhverfi sem ÁTVR þurfi að laga sig að Vilborg Arna og Auðbjörg til liðs við FranklinCovey Þorgerður skipuð forstjóri ÁTVR „Ég veit ekki alveg hvað er að fara að gerast“ Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Meðallaun 758 þúsund á mánuði Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur Ráðinn framkvæmdastjóri Janusar heilsueflingar Fyrsta sinni í mörg herrans ár neftóbakslaust í Leifsstöð Mun stýra Starfsþróunarsetri BHM Tilfallandi neftóbaksskortur veldur skjálfta 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Sjá meira