Lífið

Flaug á hausinn fyrsta skóladaginn eftir frí

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Lilja Rós er meðal keppenda í Ungfrú Ísland.
Lilja Rós er meðal keppenda í Ungfrú Ísland.

„Ég og mín kynslóð eyðum of miklum tíma á samfélagsmiðlum í staðinn fyrir að horfa og pæla í hlutunum í kringum okkur. Því miður er ekkert mikið hægt að gera í þessu vandamáli nema að hvetja mína kynslóð að finna sér eitthvað áhugamál,“ segir hin átján ára Lilja Rós Friðbergsdóttir, aðspurð um stærsta vandamálið sem hennar kynslóð stendur frammi fyrir.

Fegurðarsamkeppnin Ungfrú Ísland verður haldin í tíunda skipti þann 3. apríl næstkomandi og fer fram í Gamla bíói. Keppendur eru tuttugu talsins og eru á aldrinum 18 til 37 ára.

Lífið á Vísi ræðir við stúlkurnar sem keppast um titilinn Ungfrú Ísland í ár og fær að kynnast þeim aðeins betur. Ungfrú Ísland verður í beinni útsendingu þann 3. apríl á Vísi og Stöð 2 Vísi.


Fullt nafn? Lilja Rós Friðbergsdóttir.

Aldur? 18 ára.

Starf? Vaktstjóri á Huppu og Extraloppan.

Menntun? Klára stúdentspróf í FG.

Hvernig myndir þú lýsa sjálfri þér í þremur orðum? 

Metnaðarfull, hjálpsöm og skemmtileg. 

Hvað kæmi fólki mest á óvart að vita um þig? Að ég talaði einu sinni bara dönsku og þurfti að fara á talnámskeið til að læra íslensku. 

Hver er fyrirmynd þín í lífinu? Mamma mín, hún er hugrökk, sterk og góðhjörtuð.

Hvað hefur mótað þig mest? Ég tel vini mína hafa mótað mig sem mest og hjálpað mér að vera besta útgáfan af sjálfri mér.

Hver er mesta áskorunin sem þú hefur þurft að takast á við, og hvernig komstu þér í gegnum hana? Feimni og kvíði, Ungfrú ísland keppnin hefur hjálpað mér mjög mikið með því að læra að stíga út fyrir þægindarammann, en einnig held ég að öryggið hafi komið með þroskanum. 

Hverju ertu stoltust af? Að hafa náð lang flestum markmiðum sem ég hef sett mér fyrir, t.d. að klára stúdentsprófið á þremur árum. 

Hver er þín mesta gæfa í lífinu? Að hafa fengið að alast upp á stabílu og góðu heimili, og fengið að upplifa heilbrigt og gott líf. 

Hvernig tekstu á við stress og álag? Taka góða og róandi sturtu, slaka á og anda djúpt eða fara í bíltúr með mínum nánustu vinum. 

Besta heilræði sem þú hefur fengið? 

Aldrei gefast upp og eltu draumana þína. 
Arnór Trausti

Neyðarlegasta atvik sem þú hefur lent í? Þegar ég flaug á hausinn í hálku fyrsta skóladaginn minn eftir frí og var í gráum buxum. 

Býrðu yfir einhverjum leyndum hæfileika? Ekki beint leynt en ég hef æft listskauta í mörg ár og tel mig frekar góða. 

Hvað finnst þér heillandi í fari fólks? Brosið þeirra .

En óheillandi? Fólk sem er ókurteist og hrokafullt.

Hver er þinn helsti ótti? Að geta ekki eignast börn.

Hvar sérðu þig eftir tíu ár? Búin með háskólagráðuna mína, vinna sem lögga eða arkitekt, með börn og mann. 

Hvaða tungumál talarðu? Ensku og Íslensku, eitt og eitt orð í dönsku.

Hvað er uppáhalds maturinn þinn? Chilli Con Carne 

Hvaða lag tekur þú í karókí? Chasing pavement eftir Adele.

Hver er frægasti einstaklingur sem þú hefur hitt? Flóni, hef ekki hitt marga fræga einstaklinga.

Hvort kýstu að skrifa skilaboð eða eiga samskipti við fólk í eigin persónu? Ég tel mig vera betri í að skrifa skilaboð.

Ef þú fengir tíu milljónir til umráða, hvað myndirðu gera við peningana? 

Ég myndi í fyrsta lagi fjárfesta fyrir framtíðinni, t.d. kaupa íbúð og bíl, einnig myndi ég vilja ferðast víða um heiminn.

Hvað var það sem vakti áhuga þinn á keppninni? Ég fylgdist mjög vel með keppninni í fyrra og sá hversu skemmtilegt þetta var og að þetta væri tækifærið mitt, þar sem það hefur verið langsóttur draumur hjá mér að taka þátt í svona ferli. 

Hvað ert þú búin að læra í ferlinu? Er búin að auka sjálfstraustið mitt, orðin opnari og auðvitað búin að læra að fara út fyrir þægindarammann.

Hvaða samfélagslega málefni brennur þú fyrir? Líkamsímynd kvenna, og- eða kvíða. Mér finnst mjög mikilvægt að fræða fólk meira um kvíða þar sem það er ekki mikið um það. Kvíði getur verið svo mismunandi. 

Hvaða kosti þarf Ungfrú Ísland að búa yfir? Sjálfstraust, félagslynd, samvinna og góð heilsa.

Af hverju sækist þú eftir því að vera næsta Ungfrú Ísland? Ég vil vera góð fyrirmynd fyrir unga fólkið, hafa jákvæð áhrif á samfélagið og koma fram með sjálfstraustið mitt. 

Hvað greinir þig frá öðrum keppendum?

Mér finnst við allar vera mismunandi á öðruvísi og góðan hátt, en ef ég myndi velja þá væri það freknurnar mínar. 

Hvert er stærsta vandamálið sem þín kynslóð stendur frammi fyrir? Og hvernig mætti leysa það? Samfélagsmiðlar. Ég og mín kynslóð eyðum of miklum tíma á samfélagsmiðlum í staðinn fyrir að horfa og pæla í hlutunum í kringum okkur. Því miður er ekkert mikið hægt að gera í þessu vandamáli nema að hvetja mína kynslóð að finna sér eitthvað áhugamál

Hvað viltu segja við þá sem hafa neikvæða skoðun á fegurðarsamkeppnum? Fegurðarsamkeppnir í dag eru svo allt öðruvísi en talað er um, keppnin hefur breyst og orðin sterkari en hún var í gamla daga. Ungfrú ísland er ekkert annað en jákvæð skilaboð og þetta ferli hefur hjálpað mér mun meira en ég hélt. Ég mæli 100 prósent með!


Tengdar fréttir

Frægasta dúkka í heimi mótaði Erlu mest

„Ég er opin, jákvæð og forvitin um heiminn. Ég tek þátt í þessari keppni með metnað, hjartahlýju og mikla löngun til að vaxa og læra. Ég elska að kynnast nýju fólki og finn alltaf leið til að hafa gaman, sama hvað ég er að gera,“ segir Erla Talía Einarsdóttir keppandi í Ungfrú Ísland, aðspurð um hvað greini hana frá öðrum keppendum.

Ungfrú Ísland snýst ekki um fallegustu stelpuna

„Þegar ég keppti í Ungfrú Ísland í fyrsta skipti á síðasta ári var ég mjög kvíðin yfir því að stíga fram með gervifót. Ég geng örlítið öðruvísi og fannst hugmyndin um að ganga á sviði í bikiní ógnvekjandi. Sekúndubroti áður en ég steig inn á sviðið var ég viss um að ég myndi kikna í hnjánum,“ segir hin nítján ára Matthildur Emma Sigurðardóttir spurð um stærstu áskorunina sem hún hefur tekist á við í lífinu.

„Fyrir mér snýst þetta ekki bara um að sækjast eftir kórónu“

„Ég held að stærsta áskorunin sé sífelldur samanburður sem fylgir samfélagsmiðlum. Við berum okkur stöðugt saman við aðra, oft út frá óraunhæfum og fíltruðum myndum af lífi þeirra,“ segir Kristín Anna Jónsdóttir aðspurð um stærsta vandamálið sem hennar kynslóð stendur frammi fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.