Tónlist

Ís­lensku tón­listar­verð­launin: Damon Albarn lét ó­vænt sjá sig

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Nýdönsk, Una Torfa, GDRN og Mugison voru meðal þeirra sem tilnefnd eru í ár.
Nýdönsk, Una Torfa, GDRN og Mugison voru meðal þeirra sem tilnefnd eru í ár.

Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir tónlistarárið 2024 voru afhent í kvöld og voru það 26 verðlaunastyttur sem fóru á flug auk heiðursverðlauna ársins og útnefningar björtustu vonarinnar í íslensku tónlistarlífi. Meðal óvæntra gesta var bresk íslenska stórstjarnan Damon Albarn sem steig á svið.

Á meðal annarra sem stigu á stokk var Rebekka Blöndal, harðkjarnahljómsveitin Múr, Sif Margrét Tulinius, Kaktus Einarsson, Bríet og Nýdönsk. Tónlistarmaðurinn og skemmtikrafturinn Friðrik Ómar Hjörleifsson fór svo á kostum sem veislustjóri kvöldsins.

Það var útgefandinn Steinar Berg Ísleifsson sem hlaut Heiðursverðlaun íslensku tónlistarverðlaunanna í ár en afrekaskrá hans er æði löng og á hann stórkostlegan feril að baki.  Í tilkynningu frá aðstandendum segir að nánast megi fullyrða að að baki flestra kjölfestuverka í sögu íslenskrar dægurtónlistar í gegnum árin standi Steinar Berg. Loks var það hljómsveitin Múr, sem farið hefur með himinskautum upp á síðkastið, sem útnefnd var Bjartasta vonin í íslensku tónlistarlífi.

Hér má sjá öll þau sem hlutu Íslensku tónlistarverðlaunin 2025 í kvöld:

Flytjendur ársins

Djasstónlist - Óskar Guðjónsson

Önnur tónlist - Magnús Jóhann Ragnarsson

Popp, rokk, hipphopp og raftónlist - Una Torfa

Sígild og samtímatónlist - Víkingur Heiðar Ólafsson

Tónlistarmyndband ársins

1000 orð - stuttmynd - Erlendur Sveinsson

Texti ársins

Óperan hundrað þúsund - Kristín Eíríksdóttir

Upptökustjórn ársins

Bára Gísladóttir: Orchestral Works - Ragnheiður Jónsdóttir, Daniel Shores

Vinsælasta tónlist ársins í samvinnu við Rúv og Rás 2

Laufey Lín

Söngur ársins

Sígild og samtímatónlist - Ólafur Kjartan Sigurðarson

Djasstónlist - Marína Ósk Þórólfsdóttir

Popp, rokk, hipphopp og raftónlist - Magni Ásgeirsson

Lög og tónverk ársins

Hipphopp og raftónlist - Monní - Aron Can

Önnur tónlist - Mona Lisa - Markéta Irglová

Djasstónlist - Visan - Ingi Bjarni

Rokktónlist - Í Draumalandinu - Spacestation

Sígild og samtímatónlist - Konsert nr. 2 fyrir hljómsveit - Snorri Sigfús Birgisson

Lag ársins - Popptónlist - Fullkomið farartæki - Nýdönsk

Plötur ársins

Kvikmynda- og leikhústónlist - Innocence - Snorri Hallgrímsson

Djasstónlist - Öræfi - Kjartan Valdemarsson, Stórsveit Reykjavíkur

Hipphopp og raftónlist - 1000 orð - Bríet og Birnir

Önnur tónlist - Wandering Beings - Guðmundur Pétursson

Rokktónlist - allt sem hefur gerst - Supersport!

Sígild og samtímatónlist - De Lumine - Sif Margrét Tulinius

Popptónlist - Miss Flower - Emiliana Torrini

Tónlistargrafík ársins

Lobster Coda - Shrey Kathuria, Hildur Erna Villiblóm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.